Fjársterkir aðilar og jafnvel ríki fjármagni hús stofnunar Ólafs Ragnars

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands og stofn­andi Hring­borðs Norð­ur­slóða, segir að ekki sé búið að fjár­magna húsið í Vatns­mýri sem til stendur að heiti eftir honum. Samkvæmt Ólafi Ragnari mun fjár­magnið koma frá aðilum sem vilja vera með aðsetur í hús­inu. Í kynn­ing­ar­bæk­lingi kemur fram að efna­fólk og jafn­vel erlend ríki geti fjár­magnað verk­efnið og látið nefna hluta bygg­ing­ar­innar eftir sér.

Fjársterkir aðilar og jafnvel ríki fjármagni hús stofnunar Ólafs Ragnars
Geta fengið sali eða her­bergi nefnd eftir sér Í kynn­ing­ar­bæk­lingi um húsið í Vatns­mýr­inni segir að ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og jafn­vel ríki getið fengið rými í hús­inu nefnd eftir sér. Húsið á að vera kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seta Íslands og stofn­anda Hring­borðs Norð­ur­slóða.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands og stofn­andi Hring­borðs Norð­ur­slóða, segir að bygg­ing húss sem til stendur að byggja í Vatns­mýr­inni og hýsa á skrif­stofur hug­veitu hans um Norð­ur­slóðir, hafi ekki verið fjár­mögnuð. Því liggi ekki fyrir hver greiði fyrir bygg­ingu húss­ins, sem á að vera 20 til 30 þús­und fer­metrar að stærð. 

„Þau áform eru nú bara enn þá á vinnslu­stigi en hins vegar hafa Reykja­vík­ur­borg og háskól­inn gengið frá þess­ari lóð. Ætlunin er að þetta verði alþjóða­mið­stöð þar sem stefnt verður að nýsköpun og umræðum um stefnu­mótun í vís­indum og rann­sóknum með þátt­töku fjöl­margra aðila víða að um heim­inn. En þetta form er á þessu stigi í mótun og mun taka á sig mynd á næstu 1 til 2 árum,“ segir Ólafur Ragnar, sem verið hefur í for­svari fyrir Hring­borð Norð­ur­slóða síð­ast­liðin níu ár.  

Hugmyndin forsætisráðherra

Ólafur Ragnar segir aðspurður að hug­myndin að hús­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • I
    Ilmu skrifaði
    Þetta egotripp samfélag er ófært um að einu sinni ímynda sér að það vaki eitthvað annað fyrir fólki en að koma sjálfu sér á framfæri ... og við eigum það þessum vonlausu "fyrirmyndum" að þakka.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er ósiður að kenna dauða hluti við tilteknar persónur, bæði lífs og liðna. Sovétríkin sálugu höfðu af því slæma reynslu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár