986. spurningaþraut: Nord Stream, Bítlarnir og janúar

Fyrri auka­spurning:

Hér að ofan má sjá stúlku tæplega tvítuga halda ræðu. Hún er nú tæplega fimmtug og var um tíma á síðasta ári í ágætri aðstöðu til að hrinda ýmsu því í framkvæmd sem hún krafðist áður fyrr. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurningar:

1. Í hvaða landi er héraðið eða fylkið Saskatchewan?

2. Hvaða fyrirtæki tengjast þau Arnþrúður Karls­dóttir og Pétur Gunnlaugsson?

3. Einn Norðmaður hefur þjálfað karlalið Manchester United í fótbolta. Hvað heitir hann?

4.  Hvaða fyrirbæri eru Nord Stream 1 og 2?

5.  Frá hvaða borg voru Bítlarnir?

6.  Hvað hét reyfari Ragnars Jónssonar og Katrínar Jakobs­dóttur sem út kom fyrir jólin?

7.  Janúar er nefndur eftir guðinum Janusi. Í goðafræði hvaða ríkis var hann í hávegum hafður?

8.  Líkamlega var eitt nokkuð sérkennilegt við guðinn Janus. Hvað var það?

9. Hvað eiga stjórn­mála­mennirnir Björn Jónsson, Kristján Jónsson, Sigurður Eggerz og Einar Arnórsson helst sameiginlegt?

10. Hvað hét helsti aðstoðar­maður lögreglu­foringjans Morse meðan hann var og hét?

***

Seinni auka­spurning:

Úr hvaða kvikmynd er skjáskotið hér að neðan? Og svo er lárviðar­stig fyrir að nefna BÁÐA leikarana.

***

Svör við aðal­spurningum:

1. Kanada.

2. Útvarpi Sögu.

3. Ole Gunnar Solskjaer.

4. Gasleiðslur.

5. Liverpool.

6.  Reykjavík.

7.  Róma­veldis.

8.  Hann hafði tvö andlit.

9. Ásamt Hannesi Hafstein gegndu þeir allir embætti ráðherra Íslands meðan ráðherrann var aðeins einn á tímum heima­stjórnarinnar.

10. Lewis.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Liz Truss sem varð forsætis­ráðherra Breta í september síðastliðnum og lét fljótlega af embætti. 

Liz Truss

Á neðri myndinni stíga þau Uma Thurman og John Travolta dans í myndinni Pulp Fiction. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Allt rétt ásamt lárviðarstigi, nema ráðherfurnar tvær.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár