Svavar Pétur fallinn frá

Tónlistar­maðurinn, hönnuðurinn og frum­kvöð­ullinn Svavar Pétur Eysteinsson er látinn, aðeins 45 ára gamall, eftir baráttu við krabba­mein.

Svavar Pétur Eysteinsson, sem þykir hafa fangað íslenska hversdags­menningu í gervi popp­tónlistar­mannsins Prins Póló, er látinn, 45 ára gamall, eftir fjögur ár með krabba­mein.

Auk tónlistar­legs framlags vann Svavar að fjölda nýsköpunar- og sköpunar­verkefna, oft í félagi við eiginkonu sína, Berglindi Häsler. 

Í tilkynningu frá Berglindi og öðrum aðstand­endum segir að Svavar hafi verið stoltur Breiðhyltingur, gengið í Hóla­brekkuskóla og Fjölbrauta­skólann í Breið­holti. Leið hans átti eftir að liggja víðar og um mörg ólík svið. Svavar var sískapandi og oft nýskapandi í nálgun sinni.

Hann var menntaður graf­ísk­ur hönnuður og ljós­myndari, en færði út kvíarnar og gerðist frumkvöðull í matvæla­framleiðslu með fram­leiðslu og markaðs­setningu á grænmetis­pylsum - Bulsum - og Boppi.

Veggsjöld seldi Svavar og hannaði með eigin textum sem vísuðu til klassísks íslensks hversdags­leika, meðal annars: Líf ertu að grínast? Er of seint að fá sér kaffi núna? Hvar er núvitundin - er hún úti með hundinn? Hafið, ég þekki ekki annað. Hann hafði höfuð­stöðvar í Skeifunni, nánar tiltekið í Faxafeni.

Um tíma bjó Svavar með fjöl­skyldunni á Seyðis­firði og svo á Drangsnesi við Húnaflóa. Vorið 2014 flutti hann ásamt Berglindi og börnum í Berufjörð fyrir austan og stundaði lífræna ræktun, rekstur tónlistar- og kaffi­staðar og ferða­þjónustu undir nafninu Havarí.

Árið 2018 greindist Svavar með krabba­mein í vélinda sem var haldið niðri með lyfjagjöf á fjórða stigi. Hann lýsti því að hann hefði verið stjarfur fyrsta árið, en hélt síðan áfram að skapa. Fyrir honum var sköpunin lífið og án hennar ekkert líf. Hann lýsti þessu sem svo í viðtali við Kveik á RÚV. „Ég hef bara þessa þörf til að búa eitthvað til og það er bara það sem ég geri frá morgni til kvölds. Sama hvort það sé flík eða málverk eða tónlist eða ljósmynd eða vídeó eða eitthvað. Og það er í rauninni það sem heldur mér á lífi.“

Svavar Pét­ur læt­ur eft­ir sig eig­in­konu, Berg­lindi Häsler, og þrjú börn, Hrólf Stein, Al­dísi Rúnu og Elísu.

Líf ertu að grín­astLag Prins Póló af plöt­unni Þriðja kryddið kom út árið 2018.
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár