927. spurningaþraut: Sorphirðufjölskyldan knáa

927. spurningaþraut: Sorphirðufjölskyldan knáa

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er stytt­una á mynd­inni hér að ofan að finna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á hvaða plötu Bubba Morthens birt­ist fyrst lagið Hrognin eru að koma?

2.  Hvar á Íslandi er Dranga­jök­ull?

3.  Í seinni heims­styrj­öld vildi Hitler ólmur leggja undir sig borg­ina Stalín­grad til að nið­ur­lægja Stalín leið­toga Sov­ét­ríkj­anna sem borgin var nefnd eftir. En þar fyrir utan sner­ist orr­ustan ekki síst um yfir­ráð yfir sam­göngum á til­teknu fljóti. Hvaða fljót var það?

4.  Inn úr hvaða firði gengur Svarf­að­ar­dalur?

5.  Í afar vin­sælli banda­rískri sjón­varps­s­eríu sem gekk á árunum 1999 til 2007 er fjallað um fjöl­skyldu sem starfar við sorp­hirðu — en reyndar ýmis­legt fleira líka. Þætt­irnir heita eftir fjöl­skyld­unni og heita því ... hvað?

6.  Hvar er Laxnes það sem Halldór rit­höf­undur kenndi sig við?

7.  Hvað hét fyrsti mennt­aði íslenski geð­lækn­ir­inn?

8.  Einn af hinum gam­al­grónu stjórn­mála­flokkum Dan­merkur heitir Venstre. Hvað þykir nokkuð sér­kenni­legt við það?

9.  Hversu langt er nokkurn veg­inn á milli Moskvu og Kyiev? Eru það 250 kíló­metrar — 500 kíló­metrar — 750 kíló­metrar — 1.000 kíló­metrar — eða 1.500 kíló­metrar?

10.  Hversu margar lappir eða limi hafa venju­legir krabbar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn með yfir­skeggið?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ísbjarn­ar­blús.

2.  Á Vest­fjörðum.

3.  Volga.

4.  Eyja­firði.

5.  Sopranos.

6.  Í Mos­fells­dal. 

7.  Þórður Sveins­son.

8.  Hann er alls ekki vinstri flokkur.

9.  Um það bil 750 kíló­metrar.

10.  Tíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Styttan á efri mynd­inni er ofan á Brand­en­burgar-hlið­inu í Berlín.

Karlinn á neðri mynd­inni var túlkur Mikhaíls Gor­batévs Sov­ét­leið­toga, meðal ann­ars og ekki síst í við­ræðum hans við Ronald Reagan á Íslandi og víðar. Hann heitir Pavel Palazhchenko en þið þurfið ekki að vita það.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár