926. spurningaþraut: Fjölmennasta ríki fyrrum Júgóslavíu?

926. spurningaþraut: Fjölmennasta ríki fyrrum Júgóslavíu?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða kona er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á stærsta þing­flokk nú um stundir. En hvaða þing­flokkur er næst­stærstur?

2.  Minecraft er fyr­ir­bæri sem kom til sög­unnar 2009. Hvað er það?

3.  Hvaða menn­ing­ar­ríki byggði borg­ina Maccu Picchu?

4.  Karlsvagn­inn heitir stjörnu­merki á himni sem margir þekkja. Í raun er Karlsvagn­inn þó bara hluti af öðru og stærra stjörnu­merki. Hvað heitir það?

5.  En hvaða stjörnu­merki er ann­ars í gildi í dýra­hring stjörnu­spek­innar akkúrat núna? 

6.  Hvenær var uppi sú dýra­teg­und sem var síð­asti sam­eig­in­legi for­faðir manns og simpansa? Var að fyrir 40-60 millj­ónum ára — 4-6 millj­ónum ára — fyrir 400-600 þús­und árum — eða fyrir 40-60 þús­und árum?

7.  Ríkið Júgóslavía tók að leys­ast upp 1991. Hversu mörg sjálf­stæð ríki eru nú til sem áður til­heyrðu Júgóslavíu? Engin skekkju­mörk eru gefin.

8.  Og hvað skyldi vera fjöl­menn­ast af þessum fyrr­ver­andi Júgóslavíu­ríkum?

9.  En hvaða ríki er á hinn bóg­inn fámenn­ast þeirra?

10.  Og hvað heitir skag­inn sem Júgóslavíu­ríkin (og fleiri lönd) eru á?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fram­sókn­ar­flokks­ins.

2.  Tölvu­leikur.

3.  Inkar.

4.  Stóri björn­inn.

5.  Sporð­drek­inn.

6.  4-6 millj­ónum ára.

7.  Sjö. Ekki þarf að hafa nöfnin rétt en þau eru Slóvenía, Króatía, Serbía, Bosnía & Her­segóvína, Norður-Makedónía, Kósóvó, Svart­fjalla­land. Ekki hafa enn öll ríki heims við­ur­kennt Kósóvó en hér er það vita­skuld talið meðal sjálf­stæðra ríkja.

8.  Serbía er fjöl­menn­asta ríkið.

9.  Svart­fjalla­land er það fámenn­asta.

10.  Balkanskagi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er flug­kapp­inn Amelia Earhart.

Skjá­skotið á neðri mynd­inni er úr tölvu­leiknum Pacman.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár