925. spurningaþraut: Friedrich Wilhelm Viktor Albert Hohenzollern er hættur að vinna

Fyrri auka­spurning:

Hvaða íslenska stöðuvatn má sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hver er höfundur leik­ritsins Síðustu dagar Sæunnar?

2.  Í nóvember 1918 lét Friedrich Wilhelm Viktor Albert Hohenzollern af störfum sem ... sem hvað?

3.  Hvar bjó sá maður síðan til æviloka?  

4.  Hver er besti vinur Mikka Músar?

5.  Hvaða tungumál hér í heimi er notað sem opinbert tungumál í flestum löndum, alls 59 þegar síðast fréttist?

6.  Dingo nefnist dýr eitt. Hvernig dýr er það?

7.  Í hvaða landi var Makbeð kóngur?

8.  En í hvaða landi var Hamlet prins?

9.  Molotov-kokkteill er, eins og allir vita, heima­tilbúin bensín­sprengja. Hver var sá Molotov, sem kokkteillinn var kenndur við?

10.  En í hvaða stríðs­átökum var fyrst talað um Molotov-kokkteil? Hér þarf svarið að vera nákvæmt.

***

Seinni auka­spurning:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Matthías Tryggvi.

2.  Keisari Þýska­lands, yfirleitt kallaður Vilhjálmur 2.

3.  Hollandi.

4.  Guffi.

5.  Enska.

6.  Hundur.

7.  Skotlandi.

8.  Danmörku.

9.  Utan­ríkis­ráðherra Sovét­ríkjanna.

10.  Í finnska vetrar­stríðinu 1939-1940. Ekki dugar að nefna síðari heims­styrjöldina.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Kleifar­vatn.

Á neðri myndinni er Marta María ritstjóri Smart­landsins á Morgun­blaðinu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár