857. spurningaþraut: Hér er spurt um aðstoðarleikstjóra Clints Eastwood

857. spurningaþraut: Hér er spurt um aðstoðarleikstjóra Clints Eastwood

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan var tekin í tengslum við útgáfu á hljóm­plötu einni. Þessi mynd prýddi ekki albú­mið en önnur mjög svipuð var notuð. Hver er tón­list­ar­mað­ur­inn sem gaf út plöt­una?

Og svo fæst lár­við­ar­stig fyrir að þekkja plötu­heitið!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er yngsti mað­ur­inn sem hefur verið kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna?

2.  En hver er yngsti mað­ur­inn hefur orðið for­seti Banda­ríkj­anna?

3.  Artúr hét kon­ungur í hvaða ríki — að sagt er?

4.  Hann átti borð eitt mikið þar sem ridd­arar hans sátu þegar þeir voru ekki úti að vinna afreks­verk. Hvernig var borðið í lag­inu?

5.  Afreks­verk unnu ridd­arar Artúrs vissu­lega mörg og göfug. Aðeins þeim Bors, Percival og Galahad tókst þó að vinna eitt­hvað til­tekið afrek. Hvað var það?

6.  Hvar á Vest­fjörðum var rekið svo­nefnt „upp­eld­is­heim­ili“ fyrir drengi á árunum 1953-1979 og hefur síðar orðið mjög ill­ræmt?

7.  Einn kunn­asti og vin­sæl­asti rit­höf­undur lands­ins síð­ustu tveggja ára­tuga gaf í fyrra út skáld­sög­una Allir fuglar fljúga í ljósið. Hver er sá höf­undur?

8.  Systir þessa höf­undar sendi hins vegar frá sér kvik­mynd í fyrra, Sauma­klúbb­inn, eftir að hafa verið lengi við­loð­andi kvik­mynda­brans­ann, oft­ast sem hand­rits­höf­undur (Agnes Joy) eða aðstoð­ar­leik­stjóri (Clint Eastwood-myndin Flags of Our Fathers). Hvað heitir hún? — og hér dugar gælu­nafn, enda notar hún aldrei annað nafn.

9.  Helga­fell, Hvammur, Möðru­vellir, Skriða, Viðey, Þing­eyrar, Þykkvi­bær. Hvaða bær af þessum sjö sker sig frá hinum sex? 

10.  Við hvað starf­aði Martin Beck í Stokk­hólmi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin að neðan sýnir hvernig menn ímynd­uðu sér eitt af sjö undrum forn­aldar, stytt­una miklu af ... hverjum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  John F. Kennedy.

2.  Theodore Roosevelt. Hann var yngri en Kennedy þegar hann tók við emb­ætt­is­emb­ætt­inu sem vara­for­seti 1901 að McKinley for­seta myrtum.

3.  Bret­landi eða Englandi — hvorttveggja telst rétt en annað ekki.

4.  Hring­laga.

5.  Þeir fundu hinn heilaga kaleik.

6.  Breiða­vík.

7.  Auður Jóns­dóttir.

8.  Gagga.

9.  Vafa­laust má finna hitt og þetta. En viti fólk þetta á annað borð, þá blasir rétta svarið við: Á öllum þessum bæjum voru klaustur í gamla daga — nema að Hvammi.

10.  Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður. Að vísu skáld­sagna­per­sóna.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Tón­list­ar­mað­ur­inn er vita­skuld Björk.

Platan heitir Vulnicura.

Styttan er af Seifi.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thorsteinn Broddason skrifaði
    Þykkvibær sker sig út að auki. Eina bæjarnafnið sem ekki er dregið af staðháttum/náttúrunni
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár