856. spurningaþraut: Dætur Ketils flatnefs, þið þekkið þær?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða land hefur þennan fána?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Úr hvaða jurt/blómum er bragð­efnið vanilla unnið?

2.  Hvernig er skinn ísbjarna á lit­inn?

3.  Nýja Suður-Veils og Queensland eru hlutar af ... hverju?

4.  Hver er syðst af þessum níu ítölsku borgum sem hér eru taldar í staf­rófs­röð: Bologna, Feneyjar, Flórens, Genúa, Mílanó, Napólí, Parma, Róm, Tórínó?

5.  Tvær af borg­unum eru hins vegar nyrstar — eða svo litlu munar á þeim að það er vart telj­andi. Hverjar eru þær tvær? Nefna þarf báðar rétt til að fá stig.

6.  Hvaða ár fékk Ísland full­veldi?

7.  Hvað er hið opin­bera þjóð­ar­dýr Skotlands: Ein­hyrn­ingur — Gyllti örnin — Hálanda-naut­gripur (Hielan coo) — Loch Ness-skrímslið — Úlfur — Villi­göltur? 

8.  Í hvaða landi varð Perón for­seti árið 1946?

9.  Ketill flat­nefur hét norskur höfð­ingi sem átti nokkur börn er sett­ust að á Íslandi. Þar á meðal var dóttir ein sem byggði sér bæ í Hvammi. Hvað hét sú dóttir?

10.  Önnur dóttir Ketils sett­ist að í Eyja­firði með eig­in­manni sínum. Hvað hét hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi mynd birt­ist 2006 þegar konan tók við nýju starfi. Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Orkídeu, brönu­grasi.

2.  Svart.

3.  Ástralíu.

4.  Napólí.

5.  Feneyjar og Mílanó.

6.  1918.

7.  Ein­hyrn­ingur.

8.  Argent­ínu.

9.  Auður (eða Unnur) djúpúðga.

10.  Þórunn — kölluð hyrna, en Þórunn nægir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er fáni Eist­lands.

Á neðri mynd er Drífa Snædal.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár