„Eins og einhverjir olíufurstar“

Hvað finnst þér um að for­stjórar félaga sem skráð eru í Kaup­höll­ina hafi verið með 5,6 millj­ónir á mán­uði að með­al­tali í fyrra?

For­stjórar skráðra félaga í Kauphöll Íslands voru að með­al­tali með 5,6 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra, sam­kvæmt árs­reikn­ingum. Til  sam­an­burðar voru for­stjórar ann­arra fyr­ir­tækja og stofn­ana að jafn­aði með hæstu launin, eða rúm­lega tvær millj­ónir á mán­uði, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Að með­al­tali voru laun fyrir fullt starf um 711 þús­und krónur, en mið­gildi launa var 637 þús­und krónur. 

Við­mæl­endur Stund­ar­innar, sem valdir voru af handa­hófi í Kringl­unni, voru að með­al­tali með 624 þús­und krónur á mán­uði, en flestir töldu óeðli­lega mik­inn mun á hæstu launum og með­al­launum. 

Hvað finnst þér um að forstjórar félaga sem skráð eru í Kauphöllina hafi verið með 5,6 milljónir á mánuði að meðaltali í fyrra?

Guðbjörg Ólafía Gísla­dóttir, 59 ára, mót­töku­rit­ari telur að háar launa­greiðslur til for­stjór­anna séu til þess fallnar að skapa ójöfnuð í sam­fé­lag­inu. „Mér finnst það eig­in­lega galið. Gjör­sam­lega.“

Guðbjörg vill ekki gefa upp tekjur sínar.

Garðar Sig­ur­valda­son, 72 ára, raf­einda­virki er ekki mót­fall­inn hug­mynd­inni um hærri tekjur. „Ef ég væri að vinna þá þætti mér það gott. Ég myndi vilja hafa svona hátt kaup.“

Hæstu tekjur hans í gegnum tíð­ina námu um 1,5 millj­ónum króna á mán­uði.

Tómas Þor­valds­son, 80 ára, elli­líf­eyr­is­þegi. „Bara rugl. Algjör steypa. Þetta eru eins og ein­hverjir olíufurstar. Þetta er bara fárán­legt.“

Hæstu tekjur hans hafa verið 370 þús­und krónur á mán­uði.

Sara Krist­jáns­dóttir, 36 ára, sund­laug­ar­vörður. „Mér finnst það algjör geð­veiki.“

Hæstu tekjur hennar hafa verið 400 þús­und krónur á mán­uði.

Anna Sigríður Ólafs­dóttir, 18 ára, afgreiðslu­kona og starfs­maður á hjúkr­un­ar­heim­ili. „Ég hef enga skoðun, ég er lítið í póli­tík.“

Hæstu tekjur hennar hafa verið 400 þús­und krónur á mán­uði.

Gylfi Ósk­ars­son, 61 árs, læknir. „Þetta er allt of mikið.“

Gylfi vill ekki gefa upp tekjur sínar.

Júlíus Viggó Ólafsson, 21 árs, nýhættur sem fram­kvæmda­stjóri Sambands íslenskra fram­halds­skóla­nema, skýrir launa­greiðslur til for­stjór­anna með vísan í val­frelsi.

„Mér finnst það bara allt í lagi. Það er á milli fyr­ir­tækja og starfs­manna að ákveða launin. Ef að stjórnin telur að for­stjóri megi vera með 5,6 millj­ónir á mán­uði, meira eða minna, þá kemur mér það ekki við.“

Hæstu tekjur hans hafa verið um 500 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár