855. spurningaþraut: Í fyrsta sinn í sögu spurningaþrautarinnar er Doddastig í boði!

855. spurningaþraut: Í fyrsta sinn í sögu spurningaþrautarinnar er Doddastig í boði!

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd frá 1927 er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Espoo er 280.000 manna evr­ópsk borg sem núorðið er reyndar vaxin nær alveg saman við aðra borg, stærri. En í hvaða landi er Espoo?

2.  Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir varð borg­ar­stjóri Reykja­víkur 1994. Hvað nefnd­ust sam­tökin sem hún var í fram­boði fyrir?

3.  Doddi: Bók sann­leik­ans og Doddi: Ekkert rugl! nefnd­ust tvær barna­bækur sem út komu 2016 og 2017. Höf­und­arnir voru tvær konur. Þið fáið stig fyrir að nefna aðra þeirra, en ef þið eruð með bæði nöfn rétt fáiði sér­stakt Dodda­stig.

4.  Andri Freyr Hilm­ars­son, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunn­ars­dóttir, Katrín Guðrún Tryggva­dóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þor­valds­dóttir eru umsjón­ar­menn vin­sæls sjón­varps­þáttar. Hvað heitir hann?

5.  Bróðir Stein­unnar Ásu Þor­valds­dóttur er fót­bolta­þjálf­ari í fremstu röð. Hvað heitir hann?

6.  Og hvaða lið þjálfar sá góði maður?

7.  Rit­höf­undur einn hóf feril sinn með ritun skáld­sagna, gerð­ist svo um langt skeið aðsóps­mik­ill blaða­maður og rit­stjóri og skrif­aði svo þrjár einkar opin­skáar end­ur­minn­inga­bækur — Týnd í para­dís, Synda­fallið og Bréf til mömmu. Hvað heitir höf­und­ur­inn?

8.  Í bók­unum er m.a. fjallað um upp­vöxt höf­und­ar­ins í til­teknum söfn­uði sem bannar blóð­gjöf í lækn­inga­skyni og hefði það bann getað haft örlaga­rík áhrif á líf höf­und­ar­ins, sem stríddi við nokk­urt heilsu­leysi í æsku. Hvaða söfnuð er hér um að ræða?

9.  Á ofan­verðri 19. öld fann John Stith Pem­berton upp á svolitlu sem fljót­lega náði miklum vin­sældum og hefur haldið þeim fram á þennan dag. Hvað var það?

10.  Kyn­lífs­stell­ingar bera ýmis nöfn af ýmsum upp­runa, en eftir því sem næst verður kom­ist er aðeins ein alþekkt stell­ing af því tagi kennd við tölu. Hvaða tala er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

En úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Finn­landi.

2.  Reykja­vík­ur­list­inn.

3.  Hildur Knúts­dóttir og Þórdís Gísla­dóttir.

4.  Með okkar augum.

5.  Óskar Hrafn.

6.  Breiða­blik.

7.  Mikael Torfason.

8.  Vottar Jehóva.

9.  Coca Cola.

10.  69.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efra skjá­skotið er úr Metropolis.

Neðra skjá­skotið er líka úr Metropolis.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár