854. spurningaþraut: Hve margar fisktegundir hafa fundist við Ísland?

854. spurningaþraut: Hve margar fisktegundir hafa fundist við Ísland?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan? Þau sem vita hvað leik­konan heitir fá svo sér­stakt kvik­mynda­stig.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Undir hvaða nafni eða nöfnum þekkjum við asetýlsali­sýl­sýru best?

2.  Hans Zimmer er maður sem hefur hlotið ósk­arsverð­launin tví­vegis. Fyrir hvað?

3.  Hvaða borg í Asíu ber nafn sem þýðir Ljóna­borg?

4.  Í Úkraínu er líka borg sem heitir í raun­inni Ljóna­borg. Hvað köllum við þá borg?

5.  Trúflokkur einn sem sprott­inn er í Banda­ríkj­unum styðst við flókið kenn­inga­kerfi sem gengur út á að mann­kynið eigi rætur sínar að rekja til fyr­ir­bæra utan úr geimnum sem komu hingað fyrir millj­ónum ára. Þótt kenn­ing­arnar hljómi fárán­lega aðhyll­ast víst um 25.000 manns trú þessa þar vestra. Hvað nefn­ist trúflokk­ur­inn? 

6.  Og hver er lang, lang­fræg­asti ein­stak­ling­ur­inn sem aðhyllist þessa trú?

7.  Hver er stærstur spör­fugla í heimi?

8.  Hversu margar fisk­teg­undir hafa fund­ist við Ísland sam­kvæmt „fiska­tali“ sem Gunnar Jónsson fiski­fræð­ingur tók 15. nóv­em­ber 2000? Eru það 36 fisk­teg­undir, 360 teg­undir, 3.600 teg­undir, 36.000 teg­undir eða 360.000 teg­undir?

9.  Tvö gömul varð­skip Land­helg­is­gæsl­unnar voru nýlega seld. Hvað heita þau? Nefna þarf bæði.

10.  Kraut-rokk er heiti notað á ansi þunga og til­rauna­kennda rokktón­list sem þró­að­ist í til­teknu landi um og upp úr 1970. Hvaða land var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Magnyl eða aspirín — hvort tveggja er rétt.

2.  Tónlist.

3.  Singapúr.

4.  Lviv. Hún er að vísu eftir fursta að nafni Leó, ekki dýra­teg­und­inni ljón.

5.  Vís­inda­kirkjan, Church of Scientology.

6.  Tom Cruise.

7.  Hrafninn.

8.  360 fisk­teg­undir.

9.  Ægir og Týr.

10.  Þýska­land. Að þessu sinni elti ég ekki ólar við hvort fólk segir Þýska­land eða Vestur-Þýska­land.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kvik­myndin, sem fyrri spurn­ingin snýst um, heitir Arrival. Leik­konan heitir aftur á móti Amy Adams.

Konan á neðri mynd­inni er Steinunn Valdís, borg­ar­stjóri og síðar þing­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár