838. spurningaþraut: Rama eða 'Oumuamua?

838. spurningaþraut: Rama eða 'Oumuamua?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét útgerð­ar­fyr­ir­tæki Thor Jensens og sona hans?

2.  Hvað nefn­ist fyrsta kirkjan á Græn­landi — ef trúa skal heim­ildum?

3.  Úr hvaða meg­in­jökli á Íslandi falla skrið­jökl­arnir Morsár­jök­ull, Brú­ar­jök­ull, Rjúpna­brekku­jök­ull og Hrút­ár­jök­ull?

4.  Árið 2017 upp­götv­að­ist fyr­ir­bæri sem sumir vildu í byrjun nefna Rama en fékk á end­anum nafnið 'Oumuamua. 'Oumuamua er allt að 1.000 metra langt en ann­ars er flest á huldu um það. En hvað er þó vitað?

5.  Og meðal ann­arra orða — úr tungu­máli íbúa á hvaða eyja­klasa er heiti fyr­ir­bær­is­ins 'Oumuamua komið?

6.  Hvað er merki­legt við kött Schrödingers?

7.  Kött­ur­inn er kenndur við Erwin Schrödinger sem var afar merki­legur maður á sínu sviði. Löngu eftir að hann dó 1961 kom á dag­inn að Schrödinger átti sér einnig aðra hlið. Hver var hún?

8.  Hver eru tvö algeng­ustu frum­efnin í manns­lík­ama?

9.  Hvað heitir skák­fé­lagið sem Hrafn Jök­uls­son hefur haldið úti af miklum eld­móði árum saman?

10.  Árið 1982 var frum­sýnd gríð­ar­lega vin­sæl og áhrifa­mikil science-fiction bíó­mynd af nafni Blade Runner. Hver leik­stýrði henni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fáni hvaða ríkis er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kveld­úlfur.

2.  Þjóð­hild­ar­kirkja.

3.   Vatna­jökli.

4.  Einhvers konar fyr­ir­bæri sem kemur úr öðru sól­kerfi og sveifl­að­ist um sólu. Hugs­an­lega (en ekki lík­lega) ein­hvers konar vél.

5.  Orðið er úr máli íbúa á Havaí.

6.  Hann virð­ist vera dauður og lif­andi á sama tíma.

7.  Hann var barn­a­níð­ingur, nídd­ist á ungum stúlkum.

8.  Súrefni og vetni — saman í formi vatns.

9.  Hrók­ur­inn.

10.  Ridley Scott.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ginger Rogers í einni af fjöl­mörgum bíó­myndum sínum með Fred Astaire.

Á neðri mynd­inni er fáni Ítalíu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár