837. spurningaþraut: Þraut dagsins er viðráðanleg eins og alltaf

Fyrri auka­spurn­ing:

Þetta plakat J. Howard Miller fór víst ekki sér­lega víða á sínum tíma en hefur eftir á orðið vin­sælt tákn um ... hvað?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver skrif­aði bók sem heitir í íslenskri þýð­ingu Veröld sem var?

2.  Sami höf­undur skrif­aði fræga smá­sögu um afreks­mann í til­tek­inni grein sem gekk að lokum fram af sér and­lega. Hvaða grein var það?

3.  Í hvaða hafi er eyjan Rapa Nui?

4.  En í hvaða firði, flóa, vík eða vogi við Ísland er Her­gilsey?

5.  Í hvaða landi heitir for­sæt­is­ráð­herra Victor Orban?

6.  Hvaða fjall gnæfir yfir Selfoss?

7.  Ef þú blandar bláu við gult, hvaða lit færðu þá?

8.  Árið 1917 skipti um ætt­ar­nafn sitt einn hluti ættar sem bar þá heitið Saxe-Coburg-Gotha. Hvaða nafn tók þessi hluti ætt­ar­innar upp?

9.  Upp úr alda­mót­unum 1800 bar hol­lenskur kaup­maður af Gyð­inga­ættum ætt­ar­nafnið Limoen­man eftir límónu þeirri eða súr­ald­ini sem hann versl­aði mikið með og flutti inn frá útlöndum. Syni kaup­manns­ins lík­aði nafnið illa og breytti því. Sá versl­aði með dem­anta og flutti suður til Frakk­lands, þar sem sonur hans (fæddur 1878) stofn­aði fyr­ir­tæki undir hinu nýja nafni fjöl­skyld­unnar og hóf fram­leiðslu á vörum sem urðu víð­frægar, svo enn er nafnið þekkt. Hvaða nafn tók Limoen­man-fjöl­skyldan sér?

10.  Hver er sterkasti vöðvinn í manns­lík­am­anum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Einn fræg­asti og vin­sæl­asti mál­ari Banda­ríkj­anna á 20. öld gerði ógrynni mynda af mann­líf­inu þar vestra og prýddu verk hans t.d. ótelj­andi tíma­rita­kápur. Verk hans þykja núorðið ekki mikil lista­verk, hvorki að hand­bragði né hugsun, en gefa ómet­an­lega mynd af því sak­leys­is­lega sam­fé­lagi sem hvítir Banda­ríkja­menn vildu trúa að væri við lýði í landi þeirra. Hér að neðan má sjá eina mynda hans. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­a­spurn­ingum:

1.  Stefan Zweig.

2.  Skák.

3.  Kyrra­hafið.

4.  Breiða­firði.

5.  Ung­verja­landi.

6.  Ing­ólfs­fjall.

7.  Grænan.

8.  Windsor.

9.  Citroen.

10.  Vöðvinn nefn­ist tyggj­andi á íslensku, mas­seter á ensku. Í þetta sinn er hins vegar ekki kraf­ist meiri nákvæmni en svo að „vöðvinn í neðri kjálk­anum“ gefur rétt svar. Tungan er hins vegar ekki rétt svar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Plakat Millers af „Rosie the Riveter“ er reyndar oft notað sem tákn um mik­il­vægi kvenna í atvinnu­líf­inu almennt, en í síð­ari heims­styrj­öld­inni alveg sér­stak­lega. Hér verður því að nefna síð­ari heims­styrj­öld­ina til að fá stig.

Málarinn hét Norman Rockwell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár