836. spurningaþraut: Jarðskjálftar, landafræði, Kristín Rós

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða tón­list­ar­maður gaf út plötu með þessu albúmi?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Mann­skæð­asti jarð­skjálfti sög­unnar varð — eftir því sem best er vitað — árið 1556 og þá dóu 830.000 manns. Í hvaða landi varð þessi ógur­legi skjálfti?

2.  Ekki eru nema tólf ár síðan fimmti mann­skæð­asti jarð­skjálfti sög­unnar reið yfir en 2010 er talið að rúm­lega 222.000 manns hafi dáið eftir mik­inn skjálfta ... hvar?

3.  Flest er í raun­inni á huldu um fæð­ingu Jesúa frá Nasaret. En sé miðað við fyr­ir­liggj­andi heim­ildir (vissu­lega óáreið­an­legar) á hvaða ári giska þá flestir fræði­menn á að Jesúa hafi fæðst? Er það 14 fyrir Krist, 4 fyrir Krist, 4 eftir Krist eða 14 eftir Krist?

4.  Um það bil sem Jesúa var hand­tek­inn, dæmdur og tek­inn af lífi, hverjir urðu þá vinir?

5.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Kósóvó?

6.  Í hvaða heims­hluta — þokka­lega nákvæm­lega — er Gullni þrí­hyrn­ing­ur­inn svo kall­aði?

7. Bob Odenkirk lék lög­fræð­ing í mörgum þáttum af hinni vin­sælu sjón­varps­s­eríu Breaking Bad. Síðan fékk sá lög­fræð­ingur sína eigin seríu sem varð næstum jafn vin­sæl og aftur lék Odenkirk lög­fræð­ing­inn. Hvað heitir þessi seinni sería?

8.  Kristín Rós Hákon­ar­dóttir var marg­faldur heims­met­hafi og marg­faldur verð­launa­hafi á Ólymp­íu­móti fatl­aðra, en í hvaða grein?

9.  Shawn Corey Carter heitir banda­rískur tón­list­ar­maður, sem er reyndar kunnur undir allt öðru nafni. Hann er líka kunnur fyrir að vera vel kvæntur en konan hans er líka tón­list­ar­maður og enn fræg­ari en hann núorðið. Undir hvaða nafni er Shawn Corey Carter kunnur?

10.  Í Evrópu eru þrjú sjálf­stæð land­lukt ríki sem eiga aðeins landa­mæri að tveim öðrum ríkjum. Hver eru þau? Þið fáið stig fyrir að hafa tvö rétt, en lár­við­ar­stig fyrir öll þrjú.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða borg sést þarna? Athugið að myndin er kannski ekki öll þar sem hún er séð.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kína.

2.  Haítí.

3.  4 fyrir Krist.

4.  Heródes og Pílatus.

5.  Evrópu.

6.  Suð­austur-Asíu. Asía dugar ekki ein og sér. Það má líka nefna Taíland, Laos og Míanmar.

7.  Better Call Saul.

8.  Sundi.

9.  Jay-Z.

10.  Andorra (Spánn og Frakk­land), Liechtenstein (Sviss og Aust­ur­ríki), Moldova (Rúmenía og Úkraína).

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á eftir mynd­inni er umslag plöt­unnar Purple Rain með Prince.

Á neðri mynd­inni má sjá Kæró í Egifta­landi en pídamíd­arnir voru fjar­lægðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár