Fyrri aukaspurning:
Hvað heitir leikkonan á myndinni? Hún fylgdi viðtali í Vikunni árið 1987.
***
Aðalspurningar:
1. Landslið hvaða þjóðar varð á dögunum Evrópumeistari í fótbolta í kvennaflokki?
2. En hvaða lið vann fyrir viku hinn svonefnda Samfélagsskjöld í enska fótboltanum í karlaflokki?
3. Yfir hvaða þéttbýlisstað gnæfir Búlandstindur?
4. Ríkarður ljónshjarta var konungur Englands í áratug í lok tólftu aldar. Hann var sjaldséður gestur á Englandi en er aftur á móti einna kunnastur fyrir ferðalag á allt aðrar slóðir. Hvers konar ferðalag var það?
5. Í þjóðsögum og ævintýrum segir iðulega frá því að Ríkarður hafi verið vinur og stuðningsmaður ákveðinnar persónu úr enskum þjóðsagnaheimi, þótt engar líkur séu á að kóngurinn og þessi fræga persóna hafi nokkru sinni hist — hafi persónan þá yfirleitt verið til, sem er afar vafasamt. Hvaða persónu er hér um að ræða?
6. Í hvaða bæ ólust upp systkinin Heiða, Halldór, Arnór, Lóa Lóa, Páll, Abba hin og Guðbergur?
7. Hvernig er heimafólkið á tunglinu Pandóru á litinn?
8. Hver er eini málmurinn sem er í vökvaformi við stofuhita?
9. Hvað kallast 50 ára brúðkaupsafmæli? Svo fæst lárviðarstig fyrir að láta sér detta í hug hvað 90 ára brúðkaupsafmæli er kallað, að minnsta kosti á Bretlandi, en varla ná mörg hjón því marki.
10. Georg Friedrich Hegel, Immanuel Kant og Arthur Schopenhauer eru taldir meðal fremstu Þjóðverja á tilteknu sviði. Hvaða sviði?
***
Seinni aukaspurning:
Hvaða hljómsveit gaf út plötu með þessari ljósmynd á albúminu?
***
Svör við aðalspurningum:
1. Englendinga.
2. Liverpool.
3. Djúpavog.
4. Krossferð til Landsins helga.
5. Hróa hött.
6. Hafnarfirði. (Systkinin eru persónur í Sitji guðs englar-bálki Guðrúnar Helgadóttur.)
7. Blátt.
8. Kvikasilfur.
9. Gullbrúðkaup. 90 ára brúðkaupsafmæli er hins vegar nefnt granítbrúðkaup.
10. Heimspeki. Þeir gáfu vissulega út bækur en „rithöfundar“ er samt ekki nægt svar.
***
Svör við aukaspurningum:
Leikkonan heitir Steinunn Ólína.
Plötuna Sticky Fingers gáfu The Rolling Stones út.
Athugasemdir