828. spurningaþraut: „Ó reiðhjól best, þú rennur utan stans“

828. spurningaþraut: „Ó reiðhjól best, þú rennur utan stans“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heita þessi blóm?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða blaði rit­stýrir Sig­mundur Ernir Rún­ars­son um þessar mundir?

2.  Hvaða land hefur oft­ast tapað úrslita­leik á HM karla í fót­bolta, eða fjórum sinnum?

3.  Um hvaða höf­uð­borg fellur áin Thames?

4.  Í hvaða borg býr Andrés Önd?

5.  Í kosn­ingum 2009 komst Borg­ara­hreyf­ingin á þing. Þing­menn­irnir voru fjórir, en einn þeirra sagði fljót­lega skilið við hina þrjá og gekk í VG. Hvaða þing­maður var það?

6.  En hvað hétu hinir þing­menn­irnir þrír sem urðu eftir og nefndu sam­tök sín síðan Hreyf­ing­una? Hér þarf að nefna tvo af þremur til að fá stig.

7.  Í hvaða borg er Empire State Building?

8.  „Ó reið­hjól best, þú rennur utan stans / jafn renni­legt að aftan sem að framan. / Þú varst stolt hins þýska verka­manns / sem þreyttum höndum skrúf­aði þig saman.“ Af hvaða teg­und var þetta reið­hjól?

9.  Og hver skyldi hafa ort þennan hag­an­lega brag til heið­urs reið­hjól­inu sínu frá æsku­dögum?

10.  Þótt höf­undar Íslend­inga­sagna séu óþekktir hefur fólk gjarnan skemmt sér við að giska á höf­unda þeirra. Oftast eru karl­menn nefndir til sögu, en eina sögu hefur fólk stundum giskað á að kona kunni að hafa skrifað, þótt nafn hennar þekki þá eng­inn. Hvaða saga er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni? Eft­ir­nafn dugar.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Frétta­blað­inu.

2.  Þjóð­verjar / Vestur-Þjóð­verjar.

3.  London.

4.  Andabæ.

5.  Þráinn Ber­tels­son.

6.  Birgitta Jóns­dóttir, Margrét Tryggva­dóttir, Þór Saari.

7.  New York.

8.  Möve.

9.  Þórarinn Eldjárn orti Möve­kvæði. Þokkabót flutti á plöt­unni Bætiflákum lag Magnúsar R. Ein­ars­sonar við ljóðið, sjá 4.20 hér á Youtube:

10.  Laxdæla.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fag­ur­fíf­ill. Ég ætla að gefa rétt líka fyrir bald­urs­brá, því það blóm lítur nán­ast alveg eins út.

Á neðri mynd­inni er Winnie Mandela bar­áttu­kona í Suður-Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu