819. spurningaþraut: Hvað á guð að kaupa handa Janis Joplin?

Fyrri auka­spurning:

Á myndinni hér að ofan má sjá kvikmynda­leikara einn. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvaða borg kalla Íslendingar gjarnan „borgina við sundið“?

2.  Hvað er Liz Truss að reyna þessa dagana?

3.  Hvað er mörg grömm í einu kílói?

4.  Hvernig bíl bað söngkonan Janis Joplin guð að kaupa handa sér í frægu lagi frá 1971?

5.  Í sama lagi bað Joplin guð líka að kaupa handa sér tvennt annað. Hvað var það? Hér dugar að nefna annað fyrir­bærið til að fá stig, en ef þið hafið bæði, þá fáiði sérstakt hippastig.

6.  Hvaða stjórn­málaflokkur fékk næstflest atkvæði í Alþingis­kosningunum í fyrra­haust?

7.  Hvaða tvö ríki eru núna á Íberíuskaga — eða Pýreneaskaga?

8.  Ýmislegt hefur gengið á á skaga þessum. Á fimmtu öld eftir Krist birtist þar ný þjóð og lagði í nokkrum áföngum undir sig allan skagann og stofnaði þar ríki sitt. Hvaða þjóð var þetta?

9.  Árið 711 var svo enn einu sinni gerð innrás í þetta ríki og innrásar­mennirnir koll­vörpuðu þessu ríki og lögðu undir sig nær allan skagann. Hvaðan komu þessir innrásar­menn?

10.  Hveiti­akrar þekja samtals ansi stórt svæði í heiminum. En hversu stórt? — gróflega áætlað? Samsvara sameinaðir hveiti­akrar heimsins flatar­máli Rússlands — eða Kína — eða Brasilíu — eða Grænlands — eða Frakk­lands?

***

Seinni auka­spurning:

Hér má sjá hluta af nafni fjöl­miðils. Hvaða fjöl­miðils?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Kaupmanna­höfn.

2.  Að verða forsætis­ráðherra Breta — og nátt­úrlega formaður breska Íhalds­flokksins.

3.  Þúsund.

4.  Mercedes Benz.

5.  Lita­sjónvarp og gott fyllerí, eða hvernig sem þið kjósið að orða það — „a night on the town“ syngur hún. (Athugið að Joplin segir líka við guð: „Prove that you love me,“ en spurningin snýst aðeins um það sem hún biður hann að KAUPA.)

6.  Framsóknar­flokkurinn.

7.  Spánn og Portúgal.

8.  Gotar.

9.  Norður-Afríku. Ef einhver vill svara „Arabíu“ eða einhverju þess háttar er það eiginlega ekki rétt, því innrásar­mennirnir voru einfald­lega Berbar. En af því ég er umburðar­lyndur maður, þá fæst samt stig fyrir „Arabíu“ að þessu sinni.

10.  Hveiti­akrarnir samsvara helst flatar­máli Grænlands af þeim löndum sem hér eru nefnd.

***

Svör við auka­spurningum:

Filmstjarnan er Antonio Banderas.

Fjöl­miðillinn er franska blaðið Le Monde.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár