818. spurningaþraut: Fjörður, höfuðborg, klettur, tríó, áfangi í kvennasögu

Fyrri auka­spurning:

Þessi kona lærði arkitektúr í háskóla en náði síðan nokkrum frama sem höfundur grínefnis. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvaða ríki lýsti yfir sjálf­stæði 1846 en varð síðan hluti Banda­ríkjanna?

2.  Hvað heita frumefnin tvö sem saman mynda vatn?

3.  Hvers konar bókmenntir var rithöfundurinn John le Carré þekktastur fyrir?

4.  Hvaða áfanga í kven­réttinda­baráttu var náð á Alþingi 1922?

5.  Bragi Kristjónsson forn­bókasali var í mörg ár fasta­gestur í vinsælum sjónvarps­þætti. Þátturinn er enn við lýði þótt Bragi sé horfinn úr honum. Hvaða þáttur er þetta?

6.  Hollywood-myndin The Secret Life of Walter Mitty var tekin upp hér á Íslandi 2012. Leik­stjóri og aðalstjarna myndarinnar voru ein og sama persónan, er hét ... hvað?

7.  Hvaða fjörður er milli Hrúta­fjarðar og Húna­fjarðar innst í Húnaflóa?

8.  Í hvaða landi heitir höfuð­borgin Canberra?

9.  Nálægt hvaða þéttbýlis­stað er kletturinn Systra­stapi?

10.  Hvað hét tríóið sem þeir voru í, Ólafur Þórðarson, Helgi Pétursson og Ágúst Atlason?

***

Seinni auka­spurning:

Í hvaða borg er þessi stytta?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Texas.

2.  Vetni og súrefni.

3.  Njósna­bækur.

4.  Fyrsta konan tók sæti á þingi.

5.  Kiljan.

6.  Ben Stiller.

7.  Miðfjörður.

8.  Ástralía.

9.  Kirkjubæjar­klaustur.

10.  Ríó Tríó.

***

Svör við auka­spurningum:

Konan á efri myndinni heitir Zelenska. Skírnar­nafn hennar er Olena en ekki er nauðsynlegt að muna það. „Eiginkona Zelenskys“ er líka rétt.

Styttan af Jan Huss er vitaskuld í Prag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár