817. spurningaþraut: Hér eru nefndar til sögu alþekktar dætur Snorra Sturlusonar

Fyrri auka­spurning:

Á myndinni hér að ofan má meðal annars sjá kött. En hvað nefnist hitt dýrið?

***

Aðal­spurningar:

1.  Í hvaða landi er frægt svæði sem kallast „Vatna­héraðið“?

2.  Hallbera, Ingibjörg, Órækja, Vilborg og Þórdís. Hver af þessum var EKKI dóttir Snorra Sturlu­sonar sagna­ritara og höfðingja á Sturlungaöld?

3.  Við hvaða listgrein fékkst Frida Kahlo?

4.  Í hvaða hljómsveit spilar Keith Richards á gítar?

5.  Hvað heitir sá sundmaður sem hefur unnið til fleiri verðlauna á ólympíu­leikum en nokkur annar íþrótta­maður?

6.  Fyrir hvaða land keppti hann?

7.  Hvað hét fyrsti hundurinn sem sendur var út í geiminn?

8.  Út af austur­strönd sunnan­verðar Afríku eru fáeinar mjög litlar eyjar og svo ein ansi stór, sem er jafnframt sjálfstætt ríki. Hvað heitir eyjan sú?

9.  Hversu stór er sú eyja í saman­burði við Ísland? Er hún álíka stór og Ísland, fjórum sinnum stærri eða sex sinnum stærri?

10.  En hvaða ríki á megin­landi Afríku er andspænis eyju þessari í vesturátt?  

***

Seinni auka­spurning:

Hvar er þessi mynd tekin?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Englandi, Bretlandi.

2.  Órækja. Hann var SONUR Snorra.

3.  Málara­list.

4.  The Rolling Stones.

5.  Phelps.

6.  Banda­ríkin.

7.  Laika.

8.  Madagaskar.

9.  Sex sinnum stærri en Ísland.

10.  Mósambik.

***

Á efri myndinn lætur flóðsvín (á ensku capybara) vel að heimilis­ketti.

Neðri myndin er tekin í Súez-skurðinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár