„Ég lifði tvöföldu lífi þar sem ég þóttist vera harður gaur“

Antonía Arna lýsir létt­inum við að koma út sem trans og þung­bærri bið eftir kyn­leið­rétt­andi aðgerð. Hún hefur beðið í hátt í á þriðja ár. Biðin tærir upp trans fólk og getur valdið alvar­legum and­legum veik­indum. Dæmi eru um að trans fólk þurfi að leggj­ast inn á sjúkra­hús sökum þung­lyndi vegna þess.

Langur bið­tími eftir kyn­leið­rétt­andi aðgerðum veldur því að trans fólk er til­neytt til að setja líf sitt á ís meðan það bíður eftir að kom­ast í aðgerð. Þetta segir Antonía Arna við­mæl­andi Eddu Falak í nýjasta þætti Eigin kvenna. Hún segir dæmi um að trans fólk finni sig fast á vinnu­stöðum til að tapa ekki veik­inda­rétti og að það treysti sér ekki til að hefja nám vegna þess að það sé að bíða eftir aðgerð. Enn alvar­legri afleið­ingar teng­ist þó hinum óleið­rétta kynama sem trans fólk sem ekki kom­ist í aðgerð glími við. Slíkt ástand geti meðal ann­ars valdið alvar­legu þung­lyndi.

„Þetta er svo íþyngj­andi fyrir sál­ar­lífið, þessi bið. Ég komst á biðlist­ann í nóv­em­ber 2019 og þá fannst mér ég búin að að bíða mjög lengi. Það sem ger­ist svo er að Covid brestur á skömmu síðar og þá eru næstum allar þessar aðgerðir settar til hliðar. Það hefur haft mjög erfið áhrif, ég hef þurft að setja lífið mitt á stopp. Ég hætti námi þar sem ég vildi ekki vera í námi þegar ég færi í aðgerð­ina. Ég kláraði BS-gráðu í íþrótta­fræði en ég hafði ætlað mér að gera meira. Ég þori bara ekki að fara í það fyrr en ég er búin í aðgerð­inni,“ segir Antonía Arna.

„Ég þarf að vera stans­laust í við­bragðs­stöðu vegna þess að ég get átt von á að vera kölluð í hana með þriggja daga fyr­ir­vara“

Antonía Arna kom opin­ber­lega út sem trans kona árið 2016 og ákvað að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli haustið 2017. Hún þurfti því að bíða í tvö ár frá ákvörðun og þar til hún komst á biðlista eftir kyn­leið­rétt­andi aðgerð. Nú, rúmum tveimur og hálfu ári síðar, bíður hún enn og veit ekki hvenær hún á von á því að verða kölluð í aðgerð. „Ég þarf að vera stans­laust í við­bragðs­stöðu vegna þess að ég get átt von á að vera kölluð í hana með þriggja daga fyr­ir­vara,“ segir Antonía.

Kynami er hættulegur

Biðin eftir aðgerð­inni hefur því tekið mik­inn toll af Antoníu, rétt eins og af fjölda trans fólks sem er í sömu stöðu. „Þessar aðgerðir eru ekki skil­greindar sem lífs­nauð­syn­legar aðgerðir heldur er bara litið á þær sem hefð­bundnar lýta­að­gerðir. Ég vil ekki gera lítið úr því að fyrir marga bæta lýta­að­gerðir lífs­gæði þeirra en þær eru alla jafna ekki lífs­nauð­syn­legar. Kynami nær miklu dýpra en óánægja með ein­stök útlitsein­kenni. Kynami veldur alvar­legu þung­lyndi, hvað þá þegar fólk er fast í lim­bói svona lengi. Ég þekki tvær trans konur sem eru orðnar óstarf­hæfar af þung­lyndi af þessum sökum og veit um trans mann sem þurfti að leggj­ast inn á geð­deild af sömu sökum.“

Að mati Antoníu ætti bið­tími eftir kyn­leið­rétt­andi aðferðum að vera eins stuttur og kostur er. „Ég er ekki að segja að það ætti að taka mig eða annað trans fólk fram yfir alla aðra í aðgerðum, en þetta er alltof langur tími í bið. Tran­steymið vill að þessar aðgerðir verði settar í meiri for­gang og það þarf ekki mikið til, bara einn fastan skurð­að­gerð­ar­dag í mán­uði. Það myndi bjarga mjög miklu.“

Lifði leynilífi

Antonía kom út sem trans kona fyrir nán­ustu vinum sínum árið 2013 en þorði ekki að segja öllu heim­inum frá þá strax. Hún segir líf sitt á þeim tíma hafa verið mjög erfitt, hún hafi þjáðst af miklu þung­lyndi á þeim tíma. Um svipað leyti hafi hún byrjað að æfa bar­daga­í­þróttir sem hafi hjálpað henni við að takast á við átrösk­un­ar­sjúk­dóm­inn lotu­græðgi sem hún hafi þjáðst af um langt skeið. Hins vegar hafi ástundun bar­daga­í­þrótt­anna líka haft það í för með sér að hún fór í raun aftur og meira inn í skáp­inn því hún hafi upp­lifað íþrótt­ina sem svo nátengda karl­mennsku og karl­mennsku umhverfi. „Ég lifði tvö­földu lífi þar sem ég þótt­ist vera harður gaur í íþrótt­inni en utan þess lifði ég leyni­lífi þar sem ég fékk að njóta mín, klæddi mig í kjóla og mál­aði mig.“

Íþrótt­irnar höfðu þó einnig þau áhrif að Antonía fékk frek­ari áhuga á hreyf­ingu sem varð til þess að hún skráði sig í íþrótta­fræði­nám við Háskóla Íslands. „Það var erfitt að vera í íþrótta­fræð­inni hvað þetta varðar, maður er mikið í bún­ings­klefum og þetta er allt mjög kynja­skipt. Ég var samt heppin, stelp­urnar sem voru með mér, og reyndar allir bekkj­ar­fé­lag­arnir, voru frekar opnir fyrir þessu. Við vorum í skíða­ferð í jan­úar 2017, um það leyti sem ég var að við­ur­kenna opin­ber­lega að ég væri trans kona, og þá töl­uðu stelp­urnar við mig og spurðu: Viltu ekki bara prófa að vera með okkur í her­bergi? Það var í fyrsta skipti sem ég próf­aði að vera í kynj­uðu rými sem var bara ætlað fyrir konur. Mér leið mikið betur með það. Í kjöl­farið próf­aði ég að breyta nafn­inu mínu og valdi nafnið Antonía. Ég gekk þá undir því og kynnti mig þannig.“

„Þetta var svo mik­ill léttir, að fá bara að vera ég sjálf“

Antonía kom sem sagt opin­ber­lega út úr skápnum í kringum ára­mótin 2016-2017. Hún æfði á þessum tíma bar­daga­í­þróttir í Mjölni og segir að það hafi í raun verið þar sem felu­leiknum lauk. Þjálfari hjá félag­inu hafi áttað sig á því að hún væri trans kona. Hann kom til mín þegar það var komið að því að gefa gráðu og spurði: Viltu láta kalla þig Antoníu? Þá hrundi ég niður, brotn­aði saman fyrir framan alla og grét. Þetta var svo mik­ill léttir, að fá bara að vera ég sjálf.“

Leið hörmulega á „röngu“ kynþroskaskeiði

Þegar svona var komið og engin hindrun lengur ákvað Antonía að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið. Það ferli hóf hún haustið 2017. Þá var hún ríf­lega þrí­tug. Antonía lýsir því hversu flókið og erfitt lífið hafði verið henni fyrir þann tíma. „Ég man að mér leið svo illa þegar ég byrj­aði á kyn­þroska­skeiði, þessum ranga kyn­þroska, sem ég vildi ekki fá. Ég vildi ekki fá skegg, ekki fá dýpri rödd. Ég vissi ekk­ert af hverju, mér leið bara hræði­lega. Þetta varð til þess að ég sökk í djúpt þung­lyndi. Ég varð mjög erfitt barn. Ég stund­aði sjálf­skaða­hegðun og hafði sjálfs­vígs­hugs­anir sem börn eiga ekki að þurfa að díla við. Þetta hafði mikil áhrif á mitt líf og ég varð að leggj­ast inn á BUGL vegna þessa. Ég þorði aldrei að segja við neinn að ég vildi vera kona, þetta var bara eitt­hvað sem ég byrgði inni. Ég þorði ekki að við­ur­kenna það fyrr en ég var byrjuð í fram­halds­skóla.“

Kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli er bæði strangt og erfitt, og tekur langan tíma eins og rakið er hér að framan. Til að hefja ferlið þarf að kom­ast í sam­band við tran­steymi Land­spít­al­ans, nokkuð sem Antonía segir að hún hafi verið hrædd við að gera. Hún hafi verið svo hrædd við að fá neitun. „Maður þarf fyrst að fara í grein­ing­ar­ferli, og í raun sanna að maður sé nógu mikið trans fyrir teym­inu. Þeir geta neitað fólki, læknateymið. Ég ætla ekki að tala illa um þau, þau eru bara að reyna sitt besta. Það er hins vegar spurn­ing hvort þetta þurfi að vera svona ótrú­lega erfitt. Ég á mjög erfitt með að ímynda mér að ein­hver sé að fífl­ast með þetta.“

„Trúir þú að eitt­hvað afl úr geimnum hafi komið þessum hugs­unum inn í haus­inn á þér?“

Antonía lýsir því að eitt af því sem grein­ing­ar­ferlið feli í sér sé að hitta sál­fræð­ing og sá hafi verið stað­settur á Kleppi, sem henni hafi þótt bæði skrýtið og óþægi­legt. Spurn­ing­arnar sem hún hafi þurft að svara þar hafi þá verið afskap­lega und­ar­legar. „Eins og til dæmis: Trúir þú að eitt­hvað afl úr geimnum hafi komið þessum hugs­unum inn í haus­inn á þér; eða: Telur þú að þér hafi ein­hvern tíma verið rænt af geim­verum?“

Það var ekki fyrr en í ágúst árið 2018 sem Antoníu var svo loks vísað til inn­kirtla­læknis. Horm­óna­með­ferð hóf hún síðan loks undir lok árs­ins 2018, um það bil ári eftir að grein­ing­ar­ferlið hófst. Antonía segir að henni hafi þótt ferlið allt óþægi­legt. „Mér fannst það niðr­andi í raun­inni. Það er til að mynda engin trans mann­eskja í trans teym­inu, það er allt cis fólk sem á að meta hvort ég sé trans mann­eskja, eða ákveðin staðalí­mynd trans mann­eskju. Að þurfa að fara og sanna að fólk sé ekki geð­veikt, það er ansi mikið rugl.“

Líðanin gjörbreyttist til batnaðar

Antonía upp­lifði mark­verða breyt­ingu á líðan sinni eftir að hún hóf horm­óna­með­ferð­ina, þó ekki alveg strax. „Fyrst leið mér mjög und­ar­lega, ég var mjög til­finn­inga­rík og það var mjög erfitt í fyrstu. Síðan gerð­ist eitt­hvað og mín and­lega líðan rauk upp. Mér fór að líða svo ótrú­lega vel, ég var bara alltaf bros­andi. Þegar ég fékk síðan brjóstin þá leið mér ofur­vel, þó það væri vont þá brosti ég hring­inn. Ein­kunn­irnar mínar skut­ust upp, ég hafði verið í vand­ræðum í skól­anum en það gjör­breytt­ist. Sjálfs­ör­yggið jókst og and­lega líð­anin stór­batn­aði.“

Það er þó ýmis­legt sem Antonía hefur þurft að glíma við áfram, rétt eins og flest trans fólk lík­lega. Ekki síst þurfti hún þó að vinna í sjálfri sér. „Það var ekki gert ráð fyrir fólki eins og mér í verk­legum tímum í íþrótta­fræð­inni þannig að ég þurfti alltaf að fara í karla­klef­ann en ég var komin með brjóst! Ég kross­aði hendur yfir brjóstin og hljóp inn í horn, von­aði að eng­inn myndi sjá mig. Ég var svo­lítið hrædd, þetta var vand­ræða­legt. Ég átti mjög erfitt með að vera nakin. Ég gat ekki farið í kvenna­klef­ann því ég var ekki búin að fara í stóru aðgerð­ina. Svona gekk þetta út skóla­göng­una en ég hafði þetta af.

Ég er hætt að nota karla­klef­ana en ég þori ekki ennþá að fara í sturtu í kvenna­klef­anum. Fyrsta skipti sem ég fór í kvenna­klefa var þegar ég fór á æfingar hjá Þórs­hamri karate­fé­lagi og vin­kona mín, María Helga [Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­tak­anna '78], bauð mér að prófa að fara í kvenna­klef­ann. Þetta var lít­ill hópur, mjög opinn, þetta var eins og að fara með vina­hóp. Seinna byrj­aði ég að nota kvenna­klef­ann í Mjölni, ég var aðeins smeyk­ari við það af því félagið er svo stórt en það hefur ekki verið neitt vesen. Ég fer hins vegar ekki í sturtu, ekki ennþá. Fólk verður sjálft líka að vera til­búið, þetta er mikil sjálfs­vinna.“ 

Spurð hvort hún hefði kosið að hafa kost á því að fara í sér klefa í íþróttum svarar Antonía: „Já, í raun og veru. En í sjálfu sér er það ekki það sem skiptir máli heldur að sam­fé­lagið verði upp­lýst­ara í þessum efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár