Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Tveir stjórnendur selja fyrir samtals 2,3 milljarða í Arctic Fish til Síldarvinnslunnar

Eign­ar­halds­fé­lag Sig­urð­ar Pét­urs­son­ar, eins stofn­anda og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Arctic Fish, hef­ur selt hluta­bréf í fé­lag­inu fyr­ir tæp­lega 1.900 millj­ón­ir króna. Nú­ver­andi fjár­mála­stjóri lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Neil Shir­an Þór­is­son, sel­ur nú í fé­lag­inu fyr­ir rúm­lega 440 millj­ón­ir króna. Hann seg­ist ekki vera að hætta hjá fé­lag­inu en að óvissa um fram­tíð­ar­eign­ar­hald fé­lags­ins hafi spil­að inn í ákvörð­un hans.

Tveir stjórnendur selja fyrir samtals 2,3 milljarða í Arctic Fish til Síldarvinnslunnar
Stofnandi og frumkvöðull Sigurður Pétursson er einn af stofnendum Arctic Fish og einn af frumkvöðlunum í þeirri bylgju sjókvíaeldis á Íslandi sem hófst í kjölfar efnahagshrunsins. Hann hefur nú selt sig út úr fyrirtækinu á Ísafirði sem hann átti stóran þátt í að koma á koppinn.

Tveir núverandi og fyrrverandi stjórnendur í laxeldisfyrirtækinu Arctic Fish á Ísafirði hafa selt hlutabréf í félaginu til Síldarvinnslunnar fyrir rúmlega 172 milljónir norskra króna eða 2,3 milljarða íslenskra króna. Um er að ræða eignarhaldsfélag stofnanda og fyrrverandi framkvæmdastjóra Arctic Fish, Sigurð Pétursson, og núverandi fjármálastjóra félagsins, Neil Shiran Þórisson. Félag Sigurðar, og viðskiptafélaga hans, selur bréf til Síldarvinnslunnar fyrir rúmlega 1.869 milljónir króna og Neil Shiran selur fyrir rúmlega 440 milljónir króna. Viðskipti þessara aðila koma fram í tilkynningu til norsku kauphallarinnar. 

Viðskiptin hafa vakið nokkra athygli þar sem Síldarvinnslan tekur með kaupunum stórt skref inn í sjókvíaeldi á eldislaxi á Íslandi. Síldarvinnslan mun eftir kaupin eiga rúmlega 34 prósenta hlut í félaginu á móti rúmlega 51 prósenta hlut norska laxeldisrisans Norway Royal Salmon. Síldarvinnslan, sem útgerðarfélagið Samherji á ríflega þriðjungshlut í, er ekki þekkt fyrir að vera þögull minnihlutaeigandi í fyrirtækjum og hvað þá Samherji en stofnendur félagsins eru stærstu hluthafar Eimskipafélags Íslands meðal annars. 

Óvissa um framtíðareignarhald spilar inn í

Seldi hlutabréf til SíldarvinnslunnarNeil Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish, seldi hlutabréf í fyrirtækinu til Síldarvinnslunnar fyrr í júní.

Neil Shiran segir í sms-skilaboðum til Stundarinnar að sala hans á hlutabréfum í Arctic Fish feli ekki í sér að hann sé að hætta hjá félaginu. Hann segist hafa keypt bréfin á genginu 62,1 en að hann selji þau nú á genginu 100 þannig að söluhagnaður myndist í viðskiptunum. Þó bætir hann við að hlutabréfin hafi einnig verið skuldsett en að lánveitingar hafi ekki verið frá hluthöfum Arctic Fish.

Neil Shiran segir aðspurður að óvissa um eignarhald á Arctic Fish til framtíðar spili  inn í ákvörðun hans að selja hlutabréfin. „Það er erfitt að útskýra í stuttu máli. En það má líka segja að óvissa um endanlegt eignarhald undanfarið hafi haft sitt að segja. Það er að segja hvernig NRS/NTS/Salmar-málin hafa verið.“ 

„En það má líka segja að óvissa um endanlegt eignarhald undanfarið hafi haft sitt að segja“
Neil Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish

Eins og Stundin hefur greint frá stendur til að norskur eigandi Arnarlax á Bíldudal kaupi norskan eiganda Arctic Fish og hefur verið rætt um mögulegan samruna félaganna í ljósi þessa. Eigandi Arnarlax, Salmar, getur hins vegar ekki úttalað sig um samrunann eða tekið ákvörðun um hann fyrr en eftir að Salmar hefur eignast Norway Royal Salmon. 

Í viðtali við norskt blað í byrjun júní sagði nýráðinn forstjóri Salmar, Linda Litlekalsøy Aase, að afstaða til samruna lægi ekki fyrir. „Við höfum ekki tekið afstöðu til slíkra hugmynda ennþá. Þar til annað kemur í ljós virðum við samkeppnisreglurnar og við erum samkeppnisaðilar á markaði dag hvern. Bæði félögin eru starfandi á Vestfjörðunum á Íslandi og eiga nú þegar í góðri samvinnu á ýmsum stigum virðiskeðjunnar.“   

Eitt af því sem gæti gerst ef Arnarlax og Arctic Fish sameinast er að starfsmönnum og stjórnendum verður fækkað í ljósi þeirra samlegðaráhrifa sem slíkur samruni hefði í för með sér. Á þessari stundu er óljóst hvort kaup Síldarvinnslunnar á rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fish hafi einhver áhrif á mögulegan samruna þessara tveggja laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum. 

Hætti og stofnandi fræðslumiðstöð um laxeldi

Félag Sigurðar Péturssonar og viðskiptafélaga hans, Novo, keypti bréfin í Arctic Fish á tæpar 90 milljónir króna samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2020. Þar eru hlutabréfin bókfærð á kostnaðarverði. Félagið var ekki mikið skuldsett og var með langtímaskuldir upp á 86 milljónir króna það ár. Miðað við söluverð hlutabréfanna í Arctic Fish og skuldastöðu hagnast félagið mjög vel á viðskiptunum með hlutabréfin í Arctic Fish. Tæplega 1.800 milljóna króna mismunur er á verðinu sem félagið greiddi fyrir hlutabréfin í Arctic Fish og söluverðinu. 

„Arctic Fish var skráð á markað og farið að ganga vel, og þá fannst mér mínu hlutverki vera lokið“
Sigurður Pétursson, stofnandi Arctic Fish

Stundin gerði ítrekaðar tilraunir til að ná tali af Sigurði Péturssyni til að spyrja hann um viðskiptin en án árangurs. Blaðið náði hins vegar tali af einum meðhluthafa Sigurðar í Novo ehf., Ingibjörgu Valgeirsdóttur, en hún vildi ekki tjá sig um viðskiptin. „Ég hef bara engin komment á þetta. No komment, ekkert frá mér,“ segir Ingibjörg. Tveir aðrir hluthafar eiga Novo með þeim, Guðmundur Stefánsson og Þóra Vala Haraldsdóttir. 

Sigurður hætti sem framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish í fyrrasumar og stofnaði fræðslumiðstöð um fiskeldi í Reykjavík sem heitir Lax-inn. Í viðtölum hefur hann líst því að hann hafi talið sínu hlutverki hjá Arctic Fish vera lokið. „Ég er frumkvöðull í mér [...] Arctic Fish var skráð á markað og farið að ganga vel, og þá fannst mér mínu hlutverki vera lokið. Ég er hættur þar sem starfsmaður þótt ég eigi ennþá hlut í fyrirtækinu,“ sagði hann í einu slíku í vor.

Nú hefur Sigurður hins vegar selt sig út úr fyrirtækinu sem hann stofnaði og rak í áratug. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umdeilt frumvarp matvælaráðherra um lagareldi bíður líklega næsta þings
FréttirLaxeldi

Um­deilt frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi bíð­ur lík­lega næsta þings

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­mað­ur Pírata og vara­formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að enn sé ver­ið að ræða við hags­mun­að­ila út af lagar­eld­is­frum­varp­inu. Hann seg­ir lík­legra en ekki að frum­varp­ið bíði næsta þings. Frum­varp­ið er um­deilt og hafa mat­væla­ráð­herr­ar Vinstri grænna ver­ið gagn­rýnd­ir fyr­ir það.
Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
FréttirLaxeldi

Bú­ið að ráða nýj­an mann í starf­ið hjá MAST eft­ir inn­an­húsátök

Mat­væla­stofn­un hef­ur ákveð­ið að Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir verði nýr sviðs­stjóri yf­ir með­al ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eft­ir að Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn í starf­ið en hann hafði með­al ann­ars skrif­að grein­ar þar sem hann lýsti yf­ir stuðn­ingi við sjókvía­eldi sem at­vinnu­grein.
SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýn­ir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og tal­ar um hann eins og eign

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skil­að gagn­rýnni um­sögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráð­un­um hjá SFS er að rekstr­ar­leyf­in í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bund­in leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt ann­að í því.

Mest lesið

Þakklátur fyrir að vera á lífi
1
Viðtal

Þakk­lát­ur fyr­ir að vera á lífi

Þor­lák­ur Mort­hens, Tolli, hef­ur marga fjör­una sop­ið í lífs­ins ólgu­sjó. Æsku­ár­in höfðu sín áhrif en þá byrj­aði hann að teikna og var ljóst að dreng­ur­inn væri gædd­ur hæfi­leik­um. Óregla og veik­indi lit­uðu fjöl­skyldu­líf­ið og á unglings­ár­un­um sá hann um sig sjálf­ur. Um ára­bil var hann sjómað­ur, verka­mað­ur og skóg­ar­höggs­mað­ur. Eft­ir mynd­list­ar­nám hef­ur hann lif­að af mynd­list­inni. Nú er Tolli far­inn að mála í ljós­ari tón­um. Hann gaf nýra, greind­ist síð­an með krabba­mein og sigr­aði.
„Ég var bara glæpamaður“
4
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Armando Garcia
5
Aðsent

Armando Garcia

Sjón­arspil úti­lok­un­ar: Al­ræð­is­leg til­hneig­ing og grótesk­an

„Við hvað er­uð þið svona hrædd?“ spyr Arm­ando Garcia, fræði­mað­ur við Há­skóla Ís­lands, þau sem tóku þátt í pall­borði á mál­þing­inu Áskor­an­ir fyr­ir Ís­land og önn­ur smáríki í mál­efn­um flótta­fólks. Hann seg­ir sam­kom­una hafa ver­ið æf­ingu í val­kvæðri fá­fræði og til­raun til að end­ur­skapa hvíta yf­ir­burði sem um­hyggju.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég berst fyrir réttinum til að lifa“
2
Viðtal

„Ég berst fyr­ir rétt­in­um til að lifa“

Á upp­vaxt­ar­ár­un­um í suð­ur­ríkj­um Banda­ríkj­anna voru rík­ar kröf­ur gerð­ar til þess hvernig hún ætti að haga sér og sínu lífi. Þeg­ar hún fann loks frels­ið til þess að vera hún sjálf blómstr­aði hún, í ham­ingju­sömu hjóna­bandi, heima­vinn­andi hús­móð­ir, sem naut þess að sinna syni sín­um. „Ég gat lif­að og ver­ið frjáls. Það var frá­bært á með­an það ent­ist.“
Þakklátur fyrir að vera á lífi
4
Viðtal

Þakk­lát­ur fyr­ir að vera á lífi

Þor­lák­ur Mort­hens, Tolli, hef­ur marga fjör­una sop­ið í lífs­ins ólgu­sjó. Æsku­ár­in höfðu sín áhrif en þá byrj­aði hann að teikna og var ljóst að dreng­ur­inn væri gædd­ur hæfi­leik­um. Óregla og veik­indi lit­uðu fjöl­skyldu­líf­ið og á unglings­ár­un­um sá hann um sig sjálf­ur. Um ára­bil var hann sjómað­ur, verka­mað­ur og skóg­ar­höggs­mað­ur. Eft­ir mynd­list­ar­nám hef­ur hann lif­að af mynd­list­inni. Nú er Tolli far­inn að mála í ljós­ari tón­um. Hann gaf nýra, greind­ist síð­an með krabba­mein og sigr­aði.
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
5
Það sem ég hef lært

Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir

Mér renn­ur blóð­ið til skyld­unn­ar

Guð­laug Svala Stein­unn­ar Kristjáns­dótt­ir seg­ir að stærsta lexía lífs síns sé lík­lega að upp­götva um miðj­an ald­ur að hún er ein­hverf. Hún hafi átt­að sig á sjálfri sér með hjálp ann­ars ein­hverfs fólks sem þá hafði þeg­ar oln­bog­að sig áfram í heimi ráð­andi tauga­gerð­ar, misst lík­am­lega, and­lega, fé­lags­lega og starfstengda heilsu áð­ur en það átt­aði sig á sjálfu sér.
Icelandair sýknað af kröfu Margrétar – Stærsti hluti bótakröfu vegna Netflix
6
Fréttir

Icelanda­ir sýkn­að af kröfu Mar­grét­ar – Stærsti hluti bóta­kröfu vegna Net­flix

Mar­grét Frið­riks­dótt­ir krafð­ist yf­ir 24 millj­óna króna í bæt­ur eft­ir að henni var vís­að brott úr vél Icelanda­ir ár­ið 2022. Hún hafði þá neit­að að taska sem hún hafði með­ferð­is yrði færð í far­þega­rými og neit­að að setja upp grímu vegna sótt­varna. Stærsti hluti af bóta­kröf­unn­ar var vegna heim­ilda­mynd­ar sem Mar­grét hugð­ist gera og selja Net­flix.

Mest lesið í mánuðinum

Sælukot hagnast um tugi milljóna en starfsfólk og foreldrar lýsa skorti
6
Rannsókn

Sælu­kot hagn­ast um tugi millj­óna en starfs­fólk og for­eldr­ar lýsa skorti

Einka­rekni leik­skól­inn Sælu­kot, sem hef­ur feng­ið millj­arð króna í op­in­ber fram­lög síð­asta ára­tug, hef­ur hagn­ast vel og nýtt pen­ing­ana til að kaupa fast­eign­ir fyr­ir stjórn­ar­for­mann­inn. Stjórn­end­ur leik­skól­ans segja mark­mið­ið vera að ávaxta rekstr­araf­gang, en fyrr­ver­andi starfs­menn og for­eldr­ar nem­enda kvarta und­an langvar­andi skorti. Skól­an­um var ný­lega lok­að tíma­bund­ið vegna óþrifn­að­ar og mein­dýra.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár