777. spurningaþraut: Hve miklu munaði á Trump og Biden?

777. spurningaþraut: Hve miklu munaði á Trump og Biden?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Gríð­ar­lega vin­sæl sjón­varps­s­ería fyrir ungt fólk heitir sama nafni og sænska sig­ur­lagið í Eurovision-söngvakeppn­inni árið 2012. Sem sé ... hvað?

2.  Hver var flytj­andi Eurovision-lags­ins?

3.  Í hvaða hvaða fjöllum kemur Amasón-áin upp?

4.  Hversu mörgum pró­sentum mun­aði á Donald Trump og Joe Biden í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum fyrir bráðum tveim árum? Skekkju­mörk eru gefin upp með svar­inu.

5.  Vinsæl íslensk hljóm­sveit hefur látið lítið á sér kræla síð­ustu árin en síð­asta plata hennar kom út 2017 og nefnd­ist Island Broadcast. Áður voru komnar plöt­urnar How to Make Friends (2008), Don't Want to Sleep (2011) og Brighter Days (2014). Hvað heitir þessi hljóm­sveit?

6.  Önnur íslensk hljóm­sveit, öllu eldri, sendi á sínum tíma frá sér lagið Bláu augun þín. Hvaða hljóm­sveit var það?

7.   Hvað er teg­und­ar­heiti íslenska arn­ar­ins?

8.  Á síð­ari hluta 20. aldar var Róbert Arn­finns­son meðal fremstu lista­manna þjóð­ar­innar á til­teknu sviði. Róbert var sem sé ... ?

9.  Og sem lista­maður var og verður Róbert ævin­lega tengdur hljóð­færa­leik­ara einum með sér­stökum hætti. Þessi hljóð­færa­leik­ari var ... ?

10.  Árið 1928 voru sett lög í ríki einu þar sem kveðið var á um að þegn­arnir skyldu leggja niður í byrjun næsta árs það letur sem þeir höfðu notað í mörg hund­ruð ár en taka upp í stað­inn hið evr­ópska eða lat­neska letur. Hvaða ríki var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá suð­ur­strönd­ina á ansi stóru ríki í heimi hér. Hvað heitir það ríki? Ekki gef­ast strax upp — þið getið þetta vel!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Euphoria.

2.  Loren.

3.  Andes-fjöllum.

4.  Það mun­aði 4,4 pró­sentum. Rétt er allt frá 4 til 5.

5.  FM Belfast.

6.  Hljómar.

7.  Haförn.

8.  Leikari.

9.  Fiðl­ar­inn á þak­inu. Það var söng­leikur sem Róbert lék í við miklar vin­sældir.

10.  Tyrkland.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Florence Night­ingale.

Á neðri mynd­inni er suð­ur­strönd Írans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár