Segir rasisma ríkja við fyrirlagningu ökuprófa

Námskrár öku­náms eru ein­göngu til á íslensku og óheim­ilt er að hafa með sér túlk í öku­próf sé prófið sjálft til á móð­ur­máli próf­taka. „Ég vil nota orð eins og vald­níðsla gagn­vart próf­taka,“ segir fyrr­ver­andi for­maður Öku­kenn­ara­fé­lags Íslands, Guð­brandur Bogason, sem gagn­rýnir umgjörð öku­náms á Íslandi harð­lega.

Segir rasisma ríkja við fyrirlagningu ökuprófa
Fólki vís­vit­andi gert erfitt fyrir Guð­brandur gagn­rýnir mál­far og fram­setn­ingu öku­prófa sem hann segir að sé til þess fallið að valda fólki sem þó sé vel und­ir­búið vand­ræðum. Þá sé lítið til­lit tekið til þeirra sem hafi annað tungu­mál en íslensku að móð­ur­máli. Mynd: Davíð Þór

Engin fram­þróun er í námskrá öku­prófa og ekki er tekið til­lit til breyt­inga í umferð­ar­málum. Fólki sem hefur annað tungu­mál en íslensku að móð­ur­máli er ekki heim­ilt að hafa túlk sér til aðstoðar við töku öku­prófa, séu prófin til á þeirra tungu­máli, og námskrá öku­prófa er ein­göngu til á íslensku. „Það er ras­ismi að leggja þetta svona fram,“ segir Guð­brandur Bogason, fyrr­ver­andi for­maður Öku­kenn­ara­fé­lags Íslands.

Guð­brandur er fjarri því að vera sáttur við hver staða mála er varð­andi öku­nám og öku­próf á Íslandi. Hann hóf störf sem öku­kenn­ari árið 1970 og er enn að kenna, nú hálfri öld síðar. Í 27 ár var hann for­maður Öku­kenn­ara­fé­lags Íslands og starf­aði sömu­leiðis á erlendum sam­ráðs­vett­vangi, bæði á Norð­ur­löndum og innan Evr­ópu­sam­bands öku­skóla. Hann er þá fram­kvæmda­stjóri og einn eig­enda Öku­skól­ans í Mjódd og má halda því fram að fáir Íslend­ingar þekki jafn vel til öku­náms á Íslandi, þró­unar þess og stöðu.

Telur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Valur Bjarnason skrifaði
    Það er 40% fall á íslenskum ökuprófum, sem er algjörlega galið. Eitthvað myndi heyrast ef það væri 40% fall í öllum prófum í HÍ sem dæmi
    1
  • ÞNK
    Þórir N. Kjartansson skrifaði
    Hárrétt hjá Guðbrandi. Bóklegi þátturinn í ökuprófunum er fáránlega ruglingslegur og á engan hátt til þess fallinn að skila betri ökumönnum út í umferðina. Leggja meiri áherslu á verklega þáttinn, þjálfun í að keyra í borgarumferð og úti á vegum
    3
  • GH
    Gunnar Hallsson skrifaði
    Árinni kennir slæmur ræðari, segir í gömlu máltæki.
    -2
  • Þorsteinn Þ Baldvinsson skrifaði
    Þetta er stórfurðulegt og gott að það sé talað um þetta ég veit um dæmi þar sem útlendingur hefur verið feld trekk í trekk og fær ekki að sjá og hennar maður hvað hún sé að gera rangt hallo hvernig getur það staðist lög um kennslu að fólk fái ekki að sjá hvar villurnar séu og fyrir utan það að eitt fyrirtæki sé með einkaleyfi á að taka bílpróf og þeim í hag að fólk sé fellt LOL þú þarft að vera blindur til að sjá ekki að þessu þarf að breyta
    5
    • Böðvar Finnbogason skrifaði
      Myndum við ekki fá sömu meðferð ef við tækjum ökupróf t d í Bandaríkjunum?
      0
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Það er mjög gróðavænlegt að láta fólk taka prófin margoft vegna þess að málskilningur þess er ekki upp á tíu. Það kostar ekki bara nokkrar sneiðar af sjálfstrausti heldur helling af peningum í hvert sinn.
    5
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Kostnaðurinn upp, kennslan niður!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár