773. spurningaþraut: Hér er nú Margrétar-Sigfúsdóttur-stig í boði!

773. spurningaþraut: Hér er nú Margrétar-Sigfúsdóttur-stig í boði!

Fyrri auka­spurn­ing:

Á þess­ari nokk­urra ára gömlu mynd má sjá for­seta­hjónin í Banda­ríkj­unum og ... hvaða landi?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Við hvaða götu í Reykja­vík stendur lög­reglu­stöðin?

2.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Bagdad?

3.  „Ísland, far­sælda frón / og ...“ hvað?

4.  Hver orti þetta? 

5.  Hvar er að finna elsta lif­andi tré í heimi — svo stað­fest sé? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

6.  Hversu gam­alt er það tré talið vera? Er það 800 ára — 1.800 ára — 2.800 ára — 3.800 ára — eða 4.800 ára?

7.  Og hvaða nafn skyldu menn hafa gefið þessu ævagamla tré? Þið eigið auð­vitað alls ekki að vita þetta, en þið eigið hins vegar að geta giskað!

8.  Í des­em­ber 1891 var banda­ríski íþrótta­kenn­ar­inn James Naismith að reyna að hafa ofan af fyrir bekknum sínum sem ekki gat farið út að sprikla vegna rign­ingar. Þá fann hann upp nýja íþrótt fyrir þá og varð hún skjótt einkar vin­sæl. Hvaða íþrótt var það?

9.  Hver á fyr­ir­tæki sem heitir SpaceX?

10.  Eftir því sem næst verður kom­ist er aðeins einn ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn Íslands með próf frá Hús­stjórn­ar­skól­anum í Reykja­vík. Hver er það? Þó þetta sé hluti af venju­legu spurn­ing­unum, þá er þetta svo erfið spurn­ing að mér þykir sæma að veita þeim fáu sem munu geta þetta sér­stakt Mar­grétar-Sig­fús­dóttur-stig fyrir sómann.  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þetta unga fólk er að leika í vin­sælli banda­rískri sjón­varps­s­eríu sem heitir ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hverf­is­götu.

2.  Írak.

3.  „... hag­sælda, hrím­hvíta móðir.“

4.  Jónas Hall­gríms­son.

5.  Í Kali­forníu. Banda­ríkin duga ekki. Síðustu daga hafa borist fregnir af því að tré eitt í Tjíle kunni að vera 500 árum eldra en það hefur ekki verið stað­fest full­kom­lega ennþá svo Kali­fornía gildir.

6.  Það er 4.800 ára.

7.  Met­úsalem. Hann var elsti maður heims sam­kvæmt Bibl­í­unni og nafnið oft notað yfir þá sem eru æææææævagamlir.

8.  Körfu­bolti.

9.  Elon Musk.

10.  Guð­mundur Ingi Guð­brands­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru þau Michelle og Barack Obama með for­seta­hjón­unum í Finn­landi, Törju Halonen og Pentti Arajärvi.

Á neðri mynd eru leik­arar úr Stranger Things.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár