Fékk sextíu daga dóm fyrir árás sem hefði getað stefnt sambýliskonu í lífshættu

„Farðu beina leið á bráða­mót­tök­una. Áverkar þínir eru á því stigi að þeir gætu verið lífs­hættu­legir,“ voru ráð­legg­ingar Kvenna­at­hvarfs­ins þegar Helga Kristín Auð­uns­dóttur leit­aði þangað eftir að sam­býl­is­maður hennar réðst á hana á heim­ili þeirra. Það var stað­fest á bráða­mót­töku.

Fékk sextíu daga dóm fyrir árás sem hefði getað stefnt sambýliskonu í lífshættu

„Farðu beina leið á bráða­mót­tök­una. Áverkar þínir eru á því stigi að þeir gætu verið lífs­hættu­legir,“ voru ráð­legg­ingar Kvenna­at­hvarfs­ins þegar Helga Kristín Auð­uns­dóttur leit­aði þangað eftir að sam­býl­is­maður hennar réðst á hana á heim­ili þeirra. Það var stað­fest á bráða­mót­töku. Hálfu ári síðar leit­aði hún til lög­reglu og lagði fram kæru. Tveimur árum eftir árás­ina féll loks dómur. Eftir að hafa geng­ist við ofbeld­is­verkn­að­inum í dóms­sal fékk Gísli Hauksson, einn stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins GAMMA, sex­tíu daga skil­orðs­bund­inn dóm.  

Helga Kristín lýsir því hvernig hún flúði ber­fætt af heim­il­inu, með svefn­poka sem hún greip með sér. Sömu nótt hringdi hún í Kvenna­at­hvarfið þar sem hún fékk ráð­legg­ingar til að koma í veg fyrir að hún myndi fara aftur inn á heim­ilið. „Ég fór að þeirra ráðum í einu og öllu sem gaf mér svo mik­il­vægar bjargir vik­urnar á eftir. Þakklæti til þeirra verður alltaf til staðar,“ sagði Helga Kristín í Facebook-færslu eftir að dómur féll í dag. 

Kæruferið erfitt

Í dómnum kemur fram að Gísli hafi ítrekað tekið hana kverka­taki, skellt henni utan í vegg og þrengt að hálsi hennar svo hún átti erfitt með and­ar­drátt og féll í gólfið, sam­kvæmt Vísi. Þegar hún reyndi að flýja inn í her­bergi hafi hann farið á eftir henni, gripið ítrekað í hand­leggi hennar og fleygt henni á rúmið, með þeim afleið­ingum að hún hlaut tognun, ofreynslu á háls­hrygg og brjóst­hrygg, sem og marg­vís­lega yfir­borðsá­verka á hálsi, öxl og upp­hand­legg. 

Það var ekki fyrr en hálfu ári síðar, þegar henni fannst hún loks geta dregið and­ann, að hún ákvað að leggja fram kæru. Í kjöl­farið sagði Gísli sig frá stöðu for­manns fjár­mála­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

„Kæru­ferlið er með því erf­ið­asta sem ég hef upp­lifað og á margan hátt upp­lifði ég eins og kæru­ferlið hjá lög­reglu hafi gert ofbeld­is­upp­lifun­ina verri,“ sagði hún. Það hafi þó skipt máli að fá við­ur­kenn­ingu á því sem gerð­ist og við­ur­kenn­ingu á að hún hafi verið beitt ofbeldi. „Dómstóll hefur við­ur­kennt ofbeldið sem átti sér stað bak­við luktar dyr í maí 2020.“ 

Stundin hefur áður fjallað um með­ferð rétt­ar­kerf­is­ins á heim­il­is­of­beld­is­málum. Alls var rann­sókn um 1.000 heim­il­is­of­beld­is­mála hætt á tveimur árum. Yfirmenn hjá lög­reglu hafa talað fyrir því að mann­ekla bitni á brota­þolum. Þá hafa fleiri þolendur lýst því yfir að kæru­ferlið reyn­ist þung­bært, jafn­vel verra en ofbeldið sjálft. 

Sérstaklega hættulegt ofbeldi

Dómur féll eftir að Gísli gekk loks við ofbeld­inu í dóms­sal. „Lík­am­legt ofbeldi skilur eftir merki og hefur áhrif á líðan í langan tíma. Það er því gas­lýs­ing á hæsta stigi þegar ger­andi ítrekað neitar sök. Í tvö heil ár. Að hann neit­aði sök í allan þennan tíma gerði líð­an­ina á þessum tíma marg­falt verri,“ sagði Helga Kristín. 

„Þetta getur verið lífs­hættu­leg árás“
Hrönn Stef­áns­dóttir
hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala

Í fyrri umfjöllun Stund­ar­innar um rétt­ar­stöðu þolenda heim­il­is­of­beldis árétt­aði Hrönn Stef­áns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og verk­efna­stjóri fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á Land­spít­ala, alvar­leika kverka­taks. Um sé að ræða aðferð sem ger­endur beita gjarna til að sýna vald sitt gagn­vart þolendum sínum: 

„Þetta getur verið lífs­hættu­leg árás sem getur leitt til með­vit­und­ar­leysis á fimm til tíu sek­úndum og dauða innan nokk­urra mín­útna,“ sagði Hrönn og árétt­aði að þetta væri ein helsta dán­ar­or­sök í heim­il­is­of­beld­is­málum. „Ofbeldi þar sem kverka­tak er notað er sér­stak­lega hættu­legt því það geta mynd­ast bólgur og bjúgur eftir á sem geta þrengt að önd­un­ar­vegi.“ 

Varðar sex ára fangelsi

Samkvæmt Frétta­blað­inu varðar brotið hegn­ing­ar­lög um brot í nánu sam­bandi og varðar allt að sex ára fang­elsi: „Hver sem endur­tekið eða á al­var­legan hátt ógnar lífi, heilsu eða vel­ferð nú­ver­andi eða fyrr­ver­andi maka síns eða sam­búðar­aðila, niðja síns eða niðja nú­ver­andi eða fyrr­ver­andi maka síns eða sam­búðar­aðila, áa síns, eða ann­arra sem búa með honum á heim­ili eða eru í hans um­sjá, með of­beldi, hót­unum, frelsis­svipt­ingu, nauð­ung eða á annan hátt, skal sæta fang­elsi allt að 6 árum.“  

„Orkuna sem fór í að brotna ekki hefði ég svo gjarnan viljað nýta í eitt­hvað annað“
Helga Kristín
lektor við Háskól­ann á Bifröst

Þó svo að refs­ing við brot­inu varði allt að sex ára fang­elsi fékk Gísli sem fyrr segir tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm, auk þess sem hann var dæmdur til að greiða 500 þús­und krónur í miska­bætur fyrir lífs­hættu­lega árás. 

Þakkar konum sem á undan komu

Þrátt fyrir það upp­lifir Helga Kristín létti og þakkar þeim konum sem komu á undan og börð­ust fyrir rétt­læti. „Það er þeim að þakka að ég finn ekki í dag fyrir skömm yfir því að það var ráð­ist á mig. En mig langar ekki að dvelja í því að þetta var lífs­reynsla sem ég bað ekki um og óska engum. Orkuna sem fór í að brotna ekki hefði ég svo gjarnan viljað nýta í eitt­hvað annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GJ
    Guðrún Júlíusdóttir skrifaði
    Vel að merkja 60 daga skilorðsbundinn dóm, sem sagt ekkert fange3lsi.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hvílíkur drullusokkur
    1
  • Erna Arnadottir skrifaði
    Alltof vægur dómur. Fær hann vægari dóm fyrir að hafa verið fjárfestir? Eru þetta skilaboð til ungra manna um að þeir megi beita ofbeldi og reyna að drepa ef þeir eru menntaðir og ganga í jakkafõtum? Dómendur takið ykkur saman í andlitinu!
    4
  • Hjördís Ásgeirsdóttir skrifaði
    Það er skömm að þessu. Með þessum dómi er verið að gefa þau skilaboð að þetta hafi verið í lagi! Skelfileg skilaboð til ofbeldismanna og enn verra fyrir fórnarlambið. Það er alveg á hreinu að dómari sem telur slíka árás vera léttvæga er óhæfur. Það ætti að sjálfsögðu að áfrýja svona dómum sem þessum.
    7
    • PG
      Palli Garðarsson skrifaði
      Það er svo langt í frá að vera sjálfsagt að dómskerfi Sjálfstæðisflokksins komi réttvísi sinni yfir innmúraða.
      5
    • SK
      Sveinbjörg Kristjánsdóttir skrifaði
      Hjartanlega sammála. Ótrúlegur dómur.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár