Valmöguleikum Einars fækkaði í morgun

Það sem eftir stendur af gamla meiri­hlut­anum í Reykja­vík ætlar að fylgj­ast að í þeim við­ræðum sem framundan eru. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar að hitta Dag B. Egg­erts­son, odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar, í dag. Svo virð­ist sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé úr leik í bili.

Valmöguleikum Einars fækkaði í morgun
Sig­ur­veg­ari Einar Þor­steins­son er af mörgum tal­inn sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna; reif fylgi Fram­sóknar úr 3,2 í 17,5 pró­sent. Mynd: Framsókn

Viðreisn ætlar að fylgja Sam­fylk­ingu og Pírötum í meiri­hluta­við­ræðum í borg­inni. Haldist það er meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar með Flokki fólks­ins og Viðreisn úr mynd­inni. Val­mögu­leikum Einars Þor­steins­sonar, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem lýstur hefur verið sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og sagður með pálmann í hönd­unum í fjöl­miðlum hefur því fækkað. 

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ingar, til­kynnti um sam­flot gömlu meiri­hluta­flokk­anna í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í dag. Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, hafði áður til­kynnt að flokk­ur­inn ætl­aði sér ekki í meiri­hluta á ný í ljósi kosn­inga­úr­slit­anna. Flokk­ur­inn hlaut fjög­urra pró­senta fylgi, sem er rétt um hálfu pró­sentu­stigi minna en 2018.

Þórdís Lóa stað­festir yfir­lýs­ingu Dags við Vísi þar sem hún segir: „Við ræddum það ekki öðru­vísi en að við byrj­uðum bara þetta sam­tal. Við fengum þær fréttir í gær þannig að við bara fórum yfir stöð­una og ákváðum að halda saman. Það eru ákveðin skila­boð út …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Kress skrifaði
    Hver er að segja að það þurfi að vera meiri og minni hluti? Hvaðan í ósköpunum kemur sú hugmynd? Getur þetta fólk ekki bara farið að stjórna borginni, taka á verkefnum og vinna saman. Til þess var það kosið, ekki í þennan hanaslag.
    1
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    er ekki 8 =D og 4 =B,alls 12 og meirihluti ??
    -1
    • Svala Jónsdóttir skrifaði
      Sjálfstæðisflokkurinn er bara með sex borgarfulltrúa, ekki átta.
      1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það má spyrja sig hvort útspil VG sé aðeins aðdragandi að því að taka upp sama samstarf í borginni og á þingi. Það vantar þó einn upp á að þessir flokkar myndi meirihluta. Flokkur fólksins gæti bætt þar úr.
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Er þá ekki eini möguleikinn í stöðunni Samfylking, Framsókn, Píratar og Viðreisn?
    Ekki er þó nauðsynlegt að hafa Viðreisn með en fyrri meirihluti hefur ákveðið að halda saman. VG vill þó ekki taka þátt.
    1
    • Thordis Arnadottir skrifaði
      Nei útaf með viðreisn og inn með sósíalista.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu