Valmöguleikum Einars fækkaði í morgun

Það sem eftir stendur af gamla meiri­hlut­anum í Reykjavík ætlar að fylgjast að í þeim viðræðum sem framundan eru. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins, ætlar að hitta Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylk­ing­ar­innar, í dag. Svo virðist sem Sjálfstæðis­flokkurinn sé úr leik í bili.

Sigurvegari
Sig­ur­veg­ari Einar Þor­steins­son er af mörgum tal­inn sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna; reif fylgi Fram­sóknar úr 3,2 í 17,5 pró­sent. Mynd: Framsókn

Viðreisn ætlar að fylgja Samfylkingu og Pírötum í meirihluta­viðræðum í borginni. Haldist það er meirihluti Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar með Flokki fólksins og Viðreisn úr myndinni. Valmöguleikum Einars Þorsteins­sonar, oddvita Framsóknar­flokksins, sem lýstur hefur verið sigurvegari kosninganna og sagður með pálmann í höndunum í fjöl­miðlum hefur því fækkað. 

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri og oddviti Samfylkingar, tilkynnti um samflot gömlu meirihluta­flokkanna í Morgun­útvarpinu á Rás 2 í dag. Líf Magneu­dóttir, oddviti Vinstri grænna, hafði áður tilkynnt að flokkurinn ætlaði sér ekki í meirihluta á ný í ljósi kosninga­úrslitanna. Flokkurinn hlaut fjögurra prósenta fylgi, sem er rétt um hálfu prósentu­stigi minna en 2018.

Þórdís Lóa stað­festir yfir­lýsingu Dags við Vísi þar sem hún segir: „Við ræddum það ekki öðruvísi en að við byrjuðum bara þetta samtal. Við fengum þær fréttir í gær þannig að við bara fórum yfir stöðuna og ákváðum að halda saman. Það eru ákveðin skilaboð út …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Kress skrifaði
    Hver er að segja að það þurfi að vera meiri og minni hluti? Hvaðan í ósköpunum kemur sú hugmynd? Getur þetta fólk ekki bara farið að stjórna borginni, taka á verkefnum og vinna saman. Til þess var það kosið, ekki í þennan hanaslag.
    1
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    er ekki 8 =D og 4 =B,alls 12 og meirihluti ??
    -1
    • Svala Jónsdóttir skrifaði
      Sjálfstæðisflokkurinn er bara með sex borgarfulltrúa, ekki átta.
      1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það má spyrja sig hvort útspil VG sé aðeins aðdragandi að því að taka upp sama samstarf í borginni og á þingi. Það vantar þó einn upp á að þessir flokkar myndi meirihluta. Flokkur fólksins gæti bætt þar úr.
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Er þá ekki eini möguleikinn í stöðunni Samfylking, Framsókn, Píratar og Viðreisn?
    Ekki er þó nauðsynlegt að hafa Viðreisn með en fyrri meirihluti hefur ákveðið að halda saman. VG vill þó ekki taka þátt.
    1
    • Thordis Arnadottir skrifaði
      Nei útaf með viðreisn og inn með sósíalista.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár