750. spurningaþraut: Hér eru 12 spurningar um Stalín og félaga

Hér snúast allar spurningar um Stalín eða eitthvað sem honum tilheyrir.

Fyrri auka­spurning:

Í sjónvarps­seríu frá 1994 fór víðfrægur breskur leikari með hlutverk Stalíns. Hann má sjá hér að ofan. Hver er leikarinn?

***

Aðal­spurningar:

1.  Í hvaða landi, sem þá var hluti rússneska keisara­veldisins, fæddist Stalín?

2.  Stalín var af óbreyttu alþýðu­fólki. Faðir hans starfaði við ... hvað?

3.  Móðir Stalíns hugði á mikinn frama fyrir son sinn. Hún vildi að hann yrði ... hvað?

4.  Örlög Stalíns voru ráðin eftir að hann kynntist leiðtoga rússneskra kommúnista og heillaðist af honum og skrifum hans og kenningum. Hann var svo foringi Sovét­ríkjanna fyrstu árin eftir 1917. Hvað nefndist sá?

5.  Hvaða kölluðust rússneskir kommúnistar um þær mundir? 

6.  Eftir að kommúnistar náðu völdum varð Stalín að endingu einræðis­herra eftir að hafa unnið helsta keppinaut sinn í valda­baráttu. Seinna sendi Stalín launmorðingja til Mexíkó til að drepa þennan keppinaut árið 1940, en þar var hann í útlegð. Hvað hét þessi keppinautur?

7.  Í alræmdum „hreinsunum“ í sovésku stjórn­kerfi og her rétt fyrir síðari heims­styrjöld lét Stalín drepa allt að milljón manns. Margir helstu leiðtogar kommúnista og fyrrum samverka­menn Stalíns voru dregnir fyrir dóm og játuðu á sig allskonar glæpi. Íslenskur rithöfundur var viðstaddur hluta réttar­haldanna og skrifaði um þau af velþóknun. Hver var hann?

8.  Hvaða Bandaríkja­forseta hitti Stalín tvívegis á fundum um framgang seinni heims­styrjaldar? 

9.  Eftir lát Stalíns komu nokkrir aðstoðar­manna hans til mála sem eftirmenn. Þar á meðal var einn sem var svo illræmdur sem fyrrum yfirmaður leyni­þjónustunnar að hinir bundust samtökum um að hneppa hann í varðhald og síðan láta skjóta hann. Var hann fáum harmdauði. Hvað hét þessi karl?

10.  En hvað hét sá sem nokkrum misserum síðar var orðinn arftaki Stalíns og varð m.a. frægur fyrir að berja í borð á fundi Sameinuðu þjóðanna með skó sínum?

***

Seinni auka­spurning:

Þessi karl hér var einn þeirra fáu sem þorðu að bjóða Stalín byrginn eftir sigur Sovét­ríkjanna í síðari heims­styrjöldinni. Hann var þá leiðtogi Júgóslava. Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Georgíu.

2.  Skósmiður.

3.  Prestur.

4. Lenín.

5.  Bolsévíkar.

6.  Trotskí.

7.  Halldór Laxness.

8.  Franklin Roosevelt.

9.  Bería.

10.  Krústjof.

***

Svör við auka­spurningum:

Leikarinn í hlutverki Stalín er Michael Caine.

Á neðri myndinni er Tito.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurður Snæbjörn Stefánsson skrifaði
    Fyrsta skipti sem ég næ öllum aðalspurningunum rétt!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár