751. spurningaþraut: Fjármálastofnanir, stjórnmálaflokkar, sjúkdómur, fótboltamaður ...

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir unga konan sem er til vinstri á mynd­inni? Fornafn dugar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er elsti banki lands­ins, stofn­aður 1885?

2.  Árið 1980 gaf fyr­ir­tækið Kredit­kort út fyrsta kredit­kortið á Íslandi. Hvað nefnd­ist það kort?

3.  Ungur Norð­maður er nú að ganga til liðs við karla­lið Manchester City í fót­bolta. Hvað heitir hann?

4.  Sami mað­ur­inn átti mik­inn þátt í að stofna bæði Fram­sókn­ar­flokk­inn og Alþýðu­flokk­inn. Hver var sá?

5.  Og hvaða ár voru báðir flokk­arnir stofn­aðir? Hér má skeika einu ári til eða frá!

6.  Hvaða sjúk­dómur var fyrr á tíð kall­aður hvíti dauð­inn?

7.  En hver gaf út fyrir fáeinum árum úr vin­sæla glæpa­sögu sem nefnd­ist Hvíti dauð­inn?

8.  Guðrún Agn­ars­dóttir læknir sat á þingi 1983-1990. Fyrir hvað flokk?

9.  Sex árum eftir að Guðrún lét af þing­mennsku sótt­ist hún eftir öðru starfi. Hvað starf var það?

10.  Hver leikur aðal­hlut­verkið í skemmti­mynd­inni The Unbe­ara­ble Weight of Massive Talent, sem nú er sýnd í kvik­mynda­húsum víða?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hljóm­sveit gaf út þá plötu sem hér sést hluti af?

 

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lands­bank­inn.

2.  Eurocard.

3.  Haaland.

4.  Jónas frá Hriflu.

5.  1916 — svo rétt telst vera 1915-1917.

6.  Berklar.

7.  Ragnar Jónasson.

8.  Kvenna­list­ann.

9.  Forseti Íslands.

10.  Nicolas Cage.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Stúlkan á efri mynd­inni heitir Zendaya.

Umslagið á neðri mynd­inni var utan um plöt­una Rio með Duran Duran.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár