Embættismaður á hlut í félagi sem hann samdi við um hergagnaflutning

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur flogið her­gögnum til Úkraínu í á annan tug skipta und­an­farna mán­uði. Ráðu­neytið vill ekki gefa upp hversu mörg flugin eru, hver kostn­að­ur­inn sé eða hvað hafi verið flutt. Ráðu­neytið telur ekk­ert óeðli­legt við að emb­ætt­is­maður sé hlut­hafi í flug­fé­lag­inu sem oft­ast var samið við. Sama félag er sakað um félags­leg und­ir­boð og að brjóta kjara­samn­inga.

Embættismaður á hlut í félagi sem hann samdi við um hergagnaflutning

Tvö íslensk flug­fé­lög hafa tekið að sér her­gagna­flutn­ing fyrir íslensk stjórn­völd frá því brugð­ist var við beiðni Úkra­ínu­manna um aðstoð við varnir lands­ins í lok febr­úar, flug­fé­lögin Air Atlanta og Bláfugl, mun oftar síð­ar­nefnda flug­fé­lagið. Bláfugl, eða Bluebird Nordic, er rekið á íslensku flug­rekstr­ar­leyfi, en er í eigu litáísks stór­fyr­ir­tækis, Avia Solutions Group (ASG), sem skráð er á eynni Kýpur.

Utan­rík­is­ráðu­neytið vill ekki svara því hversu oft hefur verið samið við Bláfugl um her­gagna­flug. Þó hefur komið fram að vélar Bláfugls hafi séð um mik­inn meiri­hluta þeirra þrettán ferða sem farnar höfðu verið í byrjun apríl, þegar Kjarninn fjallað um málið. Ráðu­neytið vill ekki svara því hversu mörg flug hafa bæst við á þeim mán­uði sem lið­inn er.

Stjórn­völd fást heldur ekki til að gefa upp­lýs­ingar um hvers kyns her­gögn voru flutt í þessu flugi, enda sé um að ræða mál­efni sem falli utan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    VIÐ eigum þetta ,VIÐ megum þetta.
    2
  • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
    Gamla góða spillta Ísland 😁
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár