741. spurningaþraut: Gaman að vita hvernig ykkur gengur nú

741. spurningaþraut: Gaman að vita hvernig ykkur gengur nú

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir stúlkan sem hér að ofan er í greip föður síns?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1986 var nýfædd stúlka hér á landi skírð til­teknu nafni sem ekki hafði þekkst á Íslandi áður. Nafnið var fengið frá sögu­hetju úr vin­sælli bók sem hafði komið út á íslensku örfáum árum áður. Vin­sældir bæði bók­ar­innar og nafns­ins juk­ust svo hröðum skrefum á næst­unni og nú er svo komið að hund­ruð íslenskra stúlkna hafa fengið þetta nafn. Árið 2020 fengu 15 stúlkur til dæmis þetta nafn. Og allar heita þær ... ?

2.  Í hvaða heims­álfu blása monsún vindar?

3.  Jón Atli Bene­dikts­son er skóla­stjóri eða rektor í skóla einum. Hvaða skóla?

4.  Samuel Alito er Banda­ríkja­maður sem nýlega komst í frétt­irnar, frekar óvænt. Hvers vegna?

5.  Guð­mundur Arnar Guð­munds­son leik­stýrði kvik­mynd sem nýlega var frum­sýnd við góðar und­ir­tektir. Myndin fjallar um vin­áttu nokk­urra ungra pilta og svo­lítið um móður eins þeirra. Hvað heitir þessi mynd?

6.  En hvaða þýðir ann­ars það orð?

7.  Þann 16. ágúst 1941 kom Winston Churchill for­sæt­is­ráð­herra Breta í heim­sókn í borg eina og vakti heim­sóknin mikla athygli, enda stóð síð­ari heims­styrj­öldin þá sem hæst og eng­inn var fræg­ari en Churchill um þær mundir. En hvaða borg var það sem Churchill heim­sótti?

8.  Róm­verjar köll­uðu Mið­jarð­ar­hafið Mare Nostrum. Hvað þýðir það?

9.  Gerard Kuiper og Jan Oort voru báðir Hol­lend­ingar og eiga það sam­eig­in­legt að til­tekin nátt­úru­brigði eru nefnd eftir þeim. Hvar má finna þau fyr­ir­brigði sem kennd eru við Kuiper og Oort?

10.  Ítalskur end­ur­reisn­ar­mál­ari hefði í raun­inni átt að bera eft­ir­nafnið Buon­ar­roti en hann er nær ein­göngu kunnur undir skírn­ar­nafni sínu, sem var ... ?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða sjón­varps­s­eríu er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ronja.

2.  Asíu.

3.  Háskóla Íslands.

4.  Hann skrif­aði drög að mjög umdeildu áliti Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna um þung­un­ar­rof.

5.  Ber­dreymi.

6.  Að dreyma fyrir óorðnum hlutum og atburðum.

7.  Reykja­vík.

8.  Hafið okkar.

9.  Úti í geimnum.

10.  Michelangelo.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Svetlana, dóttir Stalíns.

Á neðri mynd­inni má sjá aðal­per­són­urnar í ítalska sjón­varps­mynda­flokknum Fram­úr­skar­andi vin­konu, eins og þær eru túlk­aðar ungar að árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár