Þetta eru útgerðarmennirnir sem keyptu í Íslandsbanka

All­nokkrir starf­andi útgerð­ar­menn og eig­endur útgerða eru beint eða óbeint á list­anum yfir þá fjár­festa sem keyptu hluta­bréf í Íslands­banka af íslenska rík­inu í lok mars. Þetta eru Björgólfur Jóhannssson, Guðrún Lár­us­dóttir, Jakob Valgeir Flosason, Þor­steinn Krist­jáns­son, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Gunnþór Ingvason meðal ann­arra.

Þetta eru útgerðarmennirnir sem keyptu í Íslandsbanka
All­nokkrir útgerð­ar­menn All­nokkrir útgerð­ar­menn eru meðal þeirra fjár­festa sem tóku þátt í útboð­inu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka í mars. Þar eru meðal ann­ars félög í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, Þor­steins Krist­jáns­sonar, Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og Björg­ólfs Jóhanns­sonar.

For­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, for­stjóri Samherja, annar fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja og for­stjóri Eskju eru meðal þeirra útgerð­ar­manna sem fjár­festu með beinum eða óbeinum hætti í útboði Íslands­banka á hluta­bréfum íslenska rík­is­ins sem fram fór þann 22. mars síð­ast­lið­inn. All­nokkrir útgerð­ar­menn og félög í þeirra eigu eru á list­anum yfir þá 209 aðila sem keyptu hluta­bréfin með afslætti fyrir sam­tals 52,7 millj­arða króna.  

Meðal þeirra eru Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja; Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar; Þor­steinn Krist­jáns­son, for­stjóri og annar stærsti hlut­hafi Eskju á Eski­firði; Björgólfur Jóhanns­son, einn af hlut­höfum Gjögurs á Grenivík og fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja; Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, eig­andi Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum og Guðrún Lár­us­dóttir, eig­andi félags­ins Stál­skipa sem áður var gam­al­grónin og arð­bær útgerð í Hafn­ar­firði þar til eig­end­urnir ákváðu að selja frá sér skip og kvóta. 

Keypti fyrir minnst útgerð­ar­tengdra aðilaGunnþór Ingvason er sá útgerð­ar­tengdi aðili sem keypti fyrir minnst í útboð­inu. Rúmar 2.2 millj­ónir króna.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Allir að mæta á mótmælin "BURT MEÐ ÓLÍGARKA & SPILLINGU" á morgun laugardag á Austurvelli kl. 14.
    0
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Veit einhver í hvaða stjórnmálaflokki þetta fólk er? Ég er nefnilega að hugsa um að kaupa þegar Landsvirkjun verður seld.
    0
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Gunnþór Ingason er líka eigandi Hraunlóns ehf. sem keypti fyrir 4.497.714
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár