Bjarni segist ekkert hafa með fjárfestingar föður síns að gera og að Benedikt verði að svara fyrir þær

Bjarni Bene­dikts­son segir að hann hafi fyrst frétt af þátt­töku föður síns í útboði Íslands­banka í gær. Hann bendir á að faðir sinn verði að svara fyrir fjár­fest­ingar sínar. Útboðið á hluta­bréfum í Íslands­banka hefur vakið afar hörð við­brögð á Alþingi og meðal almenn­ings.

Bjarni segist ekkert hafa með fjárfestingar föður síns að gera og að Benedikt verði að svara fyrir þær
Vissi ekk­ert um þátt­töku Haf­silf­urs Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi ekki vitað neitt um þátt­töku föður síns í útboði Íslands­banka fyrr en í gær.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann komi ekki með neinum hætti að fjár­fest­ingum fjár­fest­ing­ar­fé­lags föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar. „Nei, ég kem með engum hætti að fjár­fest­ingum Haf­silf­urs ehf. eða ann­arra fjár­fest­inga­fé­laga,“ segir Bjarni í svari sínu í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. Fjár­fest­ing­ar­fé­lag föður Bjarna, Haf­silfur ehf., keypti hluta­bréf í Íslands­banka í útboði rík­is­ins á bréfum þess þann 22. mars síð­ast­lið­inn. Félagið keypti fyrir tæp­lega 55 millj­ónir króna. Blaðið sendi Bjarna spurn­ingar um fjár­fest­ingu félags föður hans í gær og bár­ust svörin nú í morgun. 

Birting list­ans með þátt­tak­endum í útboð­inu hefur vakið hörð við­brögð og var hart tek­ist á um málið í þing­sal Alþingis í morgun. Þar sagði Oddný Harð­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, að útboðið lyktaði af spill­ingu: „Þegar eitt­hvað lítur út eins og spill­ing og …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Allir að mæta á mótmælin "BURT MEÐ ÓLÍGARKA & SPILLINGU" á morgun laugardag á Austurvelli kl. 14.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þessa bók ættu allir að lesa

    http://herdubreid.is/hinir-osnertanlegu/
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Yfirleitt segja þessir dúddar ekki satt, eða nánast alltaf.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ömurlegur ráðherra, svo ekki sé meira sagt!
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Við skulum ekki draga orð Bjarna í vafa um að hann hafi ekki haft hugmynd um að faðir hans værei einn af útvöldu fjárfestunum. Alveg nóg að hann staðfesti að hann hafi ekki hugmynd um hvað sé í gangi, hver geri hvað né hvað séu ásættanleg vinnubrögð. Mörgum þætti sú játning hans vera nóg að honum sé ekki treystandi til að fara út í búð að kaupa mjólkurfernu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár