Bjarni segist ekkert hafa með fjárfestingar föður síns að gera og að Benedikt verði að svara fyrir þær

Bjarni Benediktsson segir að hann hafi fyrst frétt af þátttöku föður síns í útboði Íslands­banka í gær. Hann bendir á að faðir sinn verði að svara fyrir fjár­festingar sínar. Útboðið á hluta­bréfum í Íslands­banka hefur vakið afar hörð viðbrögð á Alþingi og meðal almennings.

Vissi ekkert um þátttöku Hafsilfurs
Vissi ekk­ert um þátt­töku Haf­silf­urs Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi ekki vitað neitt um þátt­töku föður síns í útboði Íslands­banka fyrr en í gær.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann komi ekki með neinum hætti að fjár­festingum fjár­festingar­félags föður síns, Benedikts Sveins­sonar. „Nei, ég kem með engum hætti að fjár­festingum Hafsilfurs ehf. eða annarra fjár­festinga­félaga,“ segir Bjarni í svari sínu í tölvu­pósti til Stundarinnar. Fjár­festingar­félag föður Bjarna, Hafsilfur ehf., keypti hlutabréf í Íslands­banka í útboði ríkisins á bréfum þess þann 22. mars síðastliðinn. Félagið keypti fyrir tæplega 55 milljónir króna. Blaðið sendi Bjarna spurningar um fjár­festingu félags föður hans í gær og bárust svörin nú í morgun. 

Birting listans með þátt­takendum í útboðinu hefur vakið hörð viðbrögð og var hart tekist á um málið í þingsal Alþingis í morgun. Þar sagði Oddný Harðar­dóttir, þingkona Samfylkingarinnar, að útboðið lyktaði af spillingu: „Þegar eitthvað lítur út eins og spilling og lyktar eins og spilling þá er það líklegast spilling,“ sagði hún. 

Bjarni sagði á þingi í morgun að hann …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Allir að mæta á mótmælin "BURT MEÐ ÓLÍGARKA & SPILLINGU" á morgun laugardag á Austurvelli kl. 14.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þessa bók ættu allir að lesa

    http://herdubreid.is/hinir-osnertanlegu/
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Yfirleitt segja þessir dúddar ekki satt, eða nánast alltaf.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ömurlegur ráðherra, svo ekki sé meira sagt!
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Við skulum ekki draga orð Bjarna í vafa um að hann hafi ekki haft hugmynd um að faðir hans værei einn af útvöldu fjárfestunum. Alveg nóg að hann staðfesti að hann hafi ekki hugmynd um hvað sé í gangi, hver geri hvað né hvað séu ásættanleg vinnubrögð. Mörgum þætti sú játning hans vera nóg að honum sé ekki treystandi til að fara út í búð að kaupa mjólkurfernu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár