Íslandsbanki: Setja þarf lög til að eigendur megi afrita hlutalistann

Íslands­banki segir að setja þurfi lög til að bank­inn geti heim­ilað hlut­höfum að afrita hlut­hafa­skrá félags­ins. Í svari bank­ans segir að jafn­vel þó lögum verði breytt í þessa veru þá komi per­sónu­vernd­ar­lög mögu­lega í veg fyrir slíka afritun. Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son hafa kallað eftir því að hlut­haf­alist­inn verði birtur og er nú beðið eftir svari frá Banka­sýslu rík­is­ins um það.

Íslandsbanki: Setja þarf lög til að eigendur megi afrita hlutalistann
Beðið eftir Banka­sýsl­unni Fjár­mála­ráð­herra hefur óskað eftir því við Banka­sýslu rík­is­ins að fá hlut­haf­alista Íslands­banka og að hann verði birtur ef lög leyfa. Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins.

Íslands­banki segir að setja þurfi lög til að hægt sé að breyta verk­lags­reglum bank­ans um hvernig hlut­haf­arnir fá að kynna sér hlut­hafa­skrá bank­ans. Þetta kemur fram í skrif­legu svari frá Íslands­banka. Eins og Stundin greindi frá í gær reyndi einn hlut­hafi í Íslands­banka að kynna sér hlut­hafa­skrá bank­ans til að fá svar við spurn­ing­unni hverjir það voru sem tóku þátt í nýlegu útboði íslenska rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í bank­anum. Maðurinn sagði að verk­lagið sem bank­inn við­hefur þegar slík skoðun fer fram hjálpi ekk­ert við aðstoða hlut­hafa til að fá svar við þeirri spurn­ingu. 

Útboð rík­is­ins á hluta­bréfum í Íslands­banka í lok mars hefur verið gagn­rýnt þar sem 140 litlir íslenskir fjár­festar tóku þátt í því. Þetta virð­ist stríða gegn upp­haf­legu hug­mynd­inni um útboðið sem byggði á því að stærri aðilar, lang­tíma­fjár­festar, kæmu frekar að útboð­inu.  Raunin varð hins vegar sú að  140 litlu aðilar keyptu rúm­lega 30 pró­sent bréf­anna. Til sam­an­burðar keyptu líf­eyr­is­sjóðir rúm 37 pró­sent. 

Samtals var um að ræða tæp­lega 7 pró­senta hlut í bank­anum sem þessir 140 aðilar keyptu með afslætti fyrir rúm­lega 16 millj­arða króna. Ekki liggur fyrir hvaða aðilar þetta voru þar sem Íslands­banki hefur sagt að ekki sé laga­heim­ild til að greina frá því hverjir tóku þátt í útboð­inu. Á meðan list­inn er óbirtur hvílir leynd yfir því hverjir fengu að kaupa þessi bréf. 

Hluthafinn komst lítið áfram

Samkvæmt hluta­fé­laga­lögum mega eig­endur hluta­fé­laga kynna sér hluta­skrá fyr­ir­tæk­is­ins á skrif­stofu þess. Ekki er hins vegar nákvæm­lega kveðið á um það í lög­unum hvernig skoð­unin á hlut­haf­alist­anum á og má fara fram. Samkvæmt mann­inum sem vildi kynna sér hlut­haf­alista Íslands­banka þá var erfitt fyrir hann að gera sjálf­stæða athugun á list­anum þar sem hann mátti ekki fletta í honum sjálfur, hann mátti ekki afrita hann og starfs­maður bank­ans var með honum allan tím­ann og stýrði skoð­un­inni á hlut­haf­alist­anum. 

„Til þess að heim­ila afritun eða gagna­vinnslu þyrfti að koma til laga­heim­ild“
Svar Íslands­banka

Um þetta sagði mað­ur­inn: „Ég hefði viljað hafa gögnin á borð­inu og ég hefði viljað taka minn tíma í þetta. Ég get ekki skoðað eldri hlut­haf­alista, ég get ekki séð hverjir keyptu eða ein­hverja sögu og ég gat ekki verið klukku­tíma að skoða þetta. Maður er þarna með mann­eskju og hún segir við mann, viltu að ég skrolli, viltu að ég fletti upp á þessu. Ég fékk aldrei að snerta mús­ina. Ég get ekk­ert unnið með þessar upp­lýs­ingar. Þetta er flott show en þetta hafði ekk­ert upp á sig fyrir mig. Ég get farið aftur í dag en þá kemur spurn­ingin: Hversu miklum tíma nenni ég að eyða í þetta? Þetta hjálpar ekk­ert við að svara þeirri spurn­ingu hverjir voru að kaupa.“

Engin lagaheimild til afritunar

Samkvæmt svar­inu frá Íslands­banka er ekki heim­ild í lögum fyrir því að hlut­hafar megi afrita hluta­skránna þó heim­ildin um að kynna sér hana sé sann­ar­lega til staðar. Orðrétt segir bank­inn:  „Samkvæmt lögum hafa hlut­hafar aðgang að hluta­skrá og mega kynna sér efni hennar. Í því felst hvorki heim­ild til afrit­unar, ljós­mynd­unar eða gagna­vinnslu. Til þess að heim­ila afritun eða gagna­vinnslu þyrfti að koma til laga­heim­ild. Til þess ber jafn­framt að líta að per­sónu­vernd­ar­lög kynnu að tak­marka allar slíkar heim­ildir, þar sem að í hlut­haf­alista er að finna per­sónu­greindar upp­lýs­ingar.“

Ráðherrar vilja birta listann

Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafa kallað eftir því að hlut­haf­alist­inn verði birtur.

Katrín hefur sagt að jafn­vel þurfi að breyta lögum til að hægt sé að birta list­ann. Hún hefur sagt um málið: „Hins vegar er það alger­lega ljóst af minni hálfu að þegar rík­is­eign á borð við Íslands­banka er seld þá á að liggja fyrir hverjir keyptu. Það eru upp­lýs­ingar sem íslenskur almenn­ingur á heimt­ingu á. Ef ein­hver tækni­leg atriði valda því að Banka­sýsla rík­is­ins telur sig ekki geta birt þær upp­lýs­ingar tel ég rétt­ast að Alþingi geri við­eig­andi breyt­ingar á lagaum­hverfi þannig að unnt sé að birta þær því að annað gengur ekki.“

Bjarni hefur sagt að hann von­ist til að hægt verði að birta hlut­haf­alist­ann ef lög heim­ila það og kall­aði hann eftir honum með bréfi til Banka­sýslu rík­is­ins í lok mars. Samkvæmt síð­ustu fréttum hefur Banka­sýsla rík­is­ins ekki svarað fjár­mála­ráð­herra um þetta erindi hans. 

Stjórn­ar­for­maður banka­sýsl­unnar, Lárus Blöndal, og for­stjór­inn, Jón Gunnar Jónsson, eru hins vegar í við­tali á vef Morg­un­blaðs­ins í dag og þar kemur fram að ólík­legt sé að stofn­unin hafi heim­ild til að birta hlut­haf­alist­ann. Svar Lárusar er hins vegar ekki end­an­legt eða form­legt og mun stofn­unin vænt­an­lega svara fjár­mála­ráð­herra með þartil­gerðum hætti. Þetta mat Banka­sýsl­unnar byggir hins vegar á lög­fræði­á­liti og áliti frá Íslands­banka sjálfum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ADV
    Arndís Dögg Valgarðsdóttir skrifaði
    Þetta verður aldrei birt almenningi en hvar er lagaheimild til að banna?
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Nú á Kata að taka á sig rögg og rifta kaupunum laga skilmála og selja aftur án afsláttar og pukurs sumra.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár