Páll á Landspítalanum: „Mér leið stundum eins og hrópandanum í eyðimörkinni“

Páll Matth­í­as­son geð­læknir hætti sem for­stjóri Land­spít­al­ans í haust eftir átta ár í starfi, en Covid-far­ald­ur­inn gerði það að verkum að hann hætti fyrr en hann ætl­aði. Eitt helsta hjart­ans mál Páls er það sem hann telur vera van­fjár­mögnun Land­spít­al­ans sem hann á erfitt með að skilja þegar fjár­fram­lög til heil­brigð­is­kerf­is­ins á Íslandi eru borin saman við Norð­ur­löndin. Páll segir að stappið um fjár­mögnun spít­al­ans hafi „étið sig upp að innan“ vegna þess að hann hafði ekki völd til fjár­magna spít­al­ann eins og þurfti en bar samt ábyrgð á honum.

<span>Páll á Landspítalanum:</span> „Mér leið stundum eins og hrópandanum í eyðimörkinni“
Léttir að vera bind­is­laus Páll Matth­í­as­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, segir að það sé viss léttir að vera hættur sem for­stjóri stofn­un­ar­innar. Vinnu­vikan hjá honum hafi farið upp í 90 tíma í Covid-far­aldr­inum en nú vinni hann eðli­lega 40 tíma vinnu­viku. Hann þurfi heldur ekki lengur að setja upp bindi á hverjum degi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Stundum finnst manni Land­spít­ali ekki eiga neina for­eldra, ekki nóg af bak­hjörlum á Alþingi. Mér leið stundum eins og hróp­and­anum í eyði­mörk­inni,“ segir Páll Matth­í­as­son, geð­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­ala – háskóla­sjúkra­húss, í við­tali við Stundina þegar hann er spurður um það af hverju ekki næst sam­staða um það á Alþingi að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið og Land­spít­al­ann þannig að fjár­mögn­unin lík­ist því sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. 

Páll tal­aði oft og ítrekað um það á meðan hann var for­stjóri að það þyrfti að fjár­magna Land­spít­al­ann betur og stóð hann í miklu stappi við stjórn­mála­menn um þetta atriði. Það er vegna þess­arar umræðu og gagn­rýni hans á fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins sem Páll talar um að honum hafi stundum liðið eins og „hróp­and­anum í eyði­mörk­inni“. 

„Mismatchið á milli ábyrgðar og valda er það sem étur mann mest að innan smám saman.“
Páll Matth­í­as­son

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár