Mannréttindasamtök skora á Samherja: „Skilið því sem var stolið“

Fulltrúar mann­réttinda­samtaka innan og utan Namibíu kröfðust þess að Samherji bætti þann skaða sem spillingar­málið í Namibíu hefur valdið. Geri fyrir­tækið það ekki sjálft ætti að þrýsta á hagsmuna­aðila sem stunda viðskipti.

„Skilið því sem var stolið,“ voru lokaorð eins frum­mælenda á málþingi um mann­réttinda­brot alþjóðlegra stór­fyrirtækja og spillingarmál í fisk­iðnaði sem haldið var á fimmtudag, þar sem mútumál Samherja í Namibíu var í forgrunni. Orðunum beindi hann að Samherja.

Málþingið var viðurkenndur hliðar­viðburður 49. þings Mann­réttinda­ráðs Sameinuðu Þjóðanna sem nú stendur yfir. Frum­mælendur á málþinginu lögðu áherslu á afleiðingar Samherja-málsins, sem kallað er Fishrot á ensku, á almenna íbúa í Namibíu; einkum og sér í lagi þá í strand­byggðum landsins.

„Fishrot-málið er klassískt dæmi um ríkisrán (state looting) rétt eins og við höfum séð hér í Suður-Afríku,“ sagði Kaajal Ramjathan-Keogh, yfirmaður afríku­deildar International Commission of Jurists, alþjóðleg mann­réttinda­samtök lögmanna og dómara. „Með milljón dollara ólöglegum greiðslum til namibískra ráðamanna tókst Samherja, þessu íslenska fyrirtæki, að komast í þá stöðu að vera það fyrirtæki sem hafði yfirráð yfir mestum kvóta í Namibíu.“

Kaajal lagði áherslu á að enn benti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þór Jóhannesson skrifaði
    Helgi minn fólk er hætt að trúa þér á meðan þú tekur þátt í mannorðsmorðs herferðinni á Viðari Þorsteins. Legg til að þú drífir þig í að biðjist afsökunar á fljótfærni þinni í því máli áður þú verður eins og hver annar þrjóskuhausinn í íslenskum fjölmiðlum sem hefur meiri áhuga á að hafa rétt fyrir sér, og hanga á því fram í rauðan dauðann, en tryggja orðspor sitt og sýna auðmýkt þegar mistök hafa verið gerð.
    -5
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Því miður virðist millistéttinni á Stundini vera í nöp við þá lægstlaunuðu og réttlætis gyðja þeirra ekki ná niður að pöbblinum ,enn bíðum þar til öll kurl eru komin til grafar ber virðingu fyrir Helga og Viðari svo eg ætla að bíða með að dæma í þessu máli.
      -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár