Barist með okkar gulli en þeirra blóði

„Við vitum að við munum vinna þetta stríð og lifa af sem þjóð. Það er því mjög mikilvægt að menningin okkar lifi einnig af, því það er eitt það verð­mætasta sem við eigum,“ segir Marta Vusyatytska í miðbæ Lviv. Öll hótel og gistiheimili eru yfirfull af flótta­mönnum sem stoppa stutt þar á leið vestur yfir landa­mærin.

Hermenn fylgjast með götum Lviv
Hermenn fylgj­ast með götum Lviv Mikil gæsla er af ótta við rúss­neska njó­sn­ara. Mynd: Stundin / Art Bicnick

Fyrstu fórnar­lömb stríðs eru saklausir borgarar. Þegar þetta er skrifað hafa mörg þúsund manns látið lífið í átökunum í Úkraínu, þar af mörg hundruð saklausir borgarar. Þeir eru nú í milljóna­tali að reyna að koma sér frá átökunum með þær litlu eigur sem þeir geta troðið í ferða­töskur og plastpoka, sem þeir þurfa svo að burðast með langa leið til öryggis.

Blaða­maður Stundarinnar, ásamt mynda­tökumanni, fór til Lviv í Úkraínu á dögunum til þess að ræða við fólk og sjá með eigin augum hver staðan er í landinu.  

Stríðið í Úkraínu hófst þann 24. febrúar síðastliðinn með innrás Rússa. Ástandið í landinu hefur verið viðkvæmt allt síðan Krímskagi var innlimaður inn í Rússland, ásamt því að rússneskir hermenn voru sendir inn í héruðin Donetsk og Luhansk í austur­hluta landsins. Nú þegar hafa rúmlega þrjár milljónir manna, aðallega konur og börn, yfirgefið Úkraínu og er um að ræða einhvern …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð liðþjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-herdeildina í Úkraínu. Hann og fleiri veita innsýn í störf þessarar umdeildustu herdeildar landsins og hafna ásökunum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru samþykktir í deildina. Um leið og herdeildin hafi verið tekin inn í þjóð­varnarliðið hafi pólitískar hugsjónir þurft að víkja.

17 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár