Rússar segja Vesturlönd neyða þá til að hertaka stórar borgir

Talsmaður rússneskra stjórn­valda segir að Banda­ríkin og Evrópu­sambandið séu að neyða þá til að hertaka stórar, úkraínskar borgir.

Dmitri Peskov
Dmitri Peskov Tals­maður Kreml sést hér á fundi í des­em­ber 2020 með Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta vörp­uðum upp á skjá í fjar­fund­ar­bún­aði. Mynd: NATALIA KOLESNIKOVA / AFP

„Leiðtogar Banda­ríkjanna og Evrópu­sambandsins virðast vera að neyða Rússa út í árásir á stórar, úkraínskar borgir til að gera landið okkar ábyrgt fyrir dauða almennra borgara,“ sagði talsmaður rússneskra stjórn­valda í Kreml, Dmitry Peskov, við frétta­menn í dag.

Peskov sagði það „enn koma til greina“ að yfirtaka stór­borgir í Úkraínu. „Pútín gaf fyrirmæli um að halda aftur af árásum á stórar borgir vegna þess að mannfall óbreyttra borgara yrði mikið,“ sagði hann. Hins vegar „útiloki“ rússneska varnarmála­ráðuneytið „ekki að setja stórar borgir, sem nú þegar eru umkringdar, undir full yfirráð sín.“

Rússar hafa þvertekið fyrir að um innrás eða stríð sé að ráða, þrátt fyrir að viðurkenna að hafa umkringt stór­borgir. Þannig er ólögmætt í Rússlandi að ræða um stríðið sem „innrás“ eða „stríð“, heldur sé um að ræða „sérstaka hernaðar­aðgerð“. Allt að 15 ára fangelsi liggur nú við því að dreifa fals­fréttum í Rússlandi, en skilgreining …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Það er nú á fleiri stöðum en einungis í Rússaveldi sem það hefur verið gert refsivert að svo mikið sem ræða þessi hörmulegu átök:

    https: //consortiumnews. com/2022/03/01/jail-time-for-czechs-agreeing-with-russian-intervention/

    Og hvað kemur yfirvöldum í Bandaríkjum við hvers kyns ,,lífsstíl" dóttir hr. Peskovs viðhefur??? Ekki hafa menn hingað til verið að skipta sér af því þótt sonur þessa Bidens sé eiturlyfjafíkill í bata!!! Þetta er nú komið út í tóma vitleysu hérna. Nóg um það. Kv
    -1
  • Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
    Með því að dirfast að senda Úkraínumönnum vopn hefur hið illa vestur leyft sér að ögra Alvaldinum í Kreml og neitt blessaðan manninn til að leggja borgir í rúst. Aumingja Pútín!
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    "Pútin fór til spákonu og vildi vita hvað væri framundan.
    Spákonan lýsti því sem hún sá: Þú ekur um í stórri limósínu
    og á gangstéttunum stendur fjöldi fólks sem fagnar ógurlega.“
    Pútín brosir: „Já ég get séð þetta fyrir mér.“
    Spákonan: „Nei nei - kistan er lokuð.“
    5
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    HVÍLÍK STEYPA !!!

    "Leiðtogar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins virðast vera að neyða Rússa út í árásir á stórar, úkraínskar borgir til að gera landið okkar ábyrgt fyrir dauða almennra borgara“
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár