Flókið yfirborð

Egill Sæbjörnsson myndlistar­maður kom hlaupandi fyrir horn í ljósum frakka með hvítan hatt (eins og Clouseau í Bleika pardusinum?). Egill og Hillbilly höfðu mælt sér mót í Austur­stræti. Þau tylltu sér Apótekið, gamalt hús með sögu í hverjum krók og kima og veltu fyrir sér arktí­tekt­úrnum og smáatriðunum í rýminu. Klukkan er 9.00 á ísköldum laugardags­morgni, þríeykið er lúið enda ætti enginn að plana fund fyrir 12.00 á laugar­dögum (og þá mætti það vera blautur löns). Fyrsti kaffi­bollinn gaf orku, á fjórða bolla var boltinn farinn að rúlla alveg sjálfur.

„Fólk svaf í tveimur hollum í gamla daga, fjóra tíma í senn. Átta tíma svefn kom bara til svo fólk gæti unnið þennan hefð­bundna vinnutíma.“ 

Síðast þegar Hillbilly spjallaði við Egil var hann með stúdíó í Berlín, en nýlega keypti hann gamla myllu í Brandenburg, sem er aðeins fyrir utan Berlín, eða, „eins og að keyra á Þingvelli“. Egill á 70% af öllu húsinu, sem er mjög stórt, efsta hæðin er um 200 fm og húsið er fjórar hæðir, svo lesendur geta reynt að ímynda sér þetta fallega, gamla hús með risa­stórum skorsteini að framan. Egill sýnir Hillbilly myndir í símanum. Rýmið var hrátt en þó rennandi vatn og rafmagn. Gamlir múrsteinar og utan­áliggjandi pípur. Hillbilly finnur ilminn af myndunum. „Ég er með alla efstu hæðina, neðstu hæðina og hluta af miðhæðinni.“ Á miðhæðinni er arkitekt og verkfræði­stofa. Það getur verið gott fyrir myndlistar­mann að hafa verk­fræðing og arkitekt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár