„Dauðsföll vegna OxyContins fá ekki næga athygli“

Kristín Davíðs­dóttir, starfs­maður Frú Ragn­heiðar, segir að notkun ungs fólks á morfín­lyfinu OxyContin hafi aukist mikið. Ungt fólk borði eða reyki lyfið, sem hafi leitt til aukinna dauðsfalla. Hún segir kald­hæðn­is­legt að Sackler-fjöl­skyldan bandaríska selji einnig mótefni Oxycontins á Íslandi.

14 dauðsföll á sex mánuðum
14 dauðs­föll á sex mán­uðum Kristín Dav­íðs­dóttir hjá skaða­minnk­un­arteymi Rauða kross­ins segir að 14 dauðs­föll vegna mor­fín­lyfja hafi átt sér stað á fyrri helm­ingi síð­asta árs. Mynd: Heiða Helgadóttir

Dæmi eru um að Íslendingar hafi dáið af stórum skömmtum af morfín­lyfinu OxyContin og tengdum lyfjum, segir Kristín Davíðs­dóttir, hjúkrunar­fræðingur og teymis­stjóri skaða­minnkunar­teymis Rauða krossins sem heitir Frú Ragn­heiður. Stundin ræddi við hana um hvaða áhrif þetta lyf hafi haft á veruleika vímuefna­neytenda á Íslandi.

Frú Ragn­heiður er eining innan Rauða krossins sem þjónustar vímuefna­neytendur á Íslandi. Teymi Frú Ragn­heiðar fer í um 4.500 heim­sóknir til vímuefna­notenda á ári og þjónustar tæplega 600 einstaklinga. 



Stundin ræddi við Kristínu vegna umfjöllunar blaðsins um ópíóðafaraldurinn sem skekið hefur Banda­ríkin, og Ísland líka að vissu leyti, síðastiðin 20 ár. Lyfja­fyrirtækið Actavis var annar stærsti seljandi morfín­skyldra verkja­lyfja á árunum 2006 til 2014 þegar samheita­lyfja­fyrirtæki­byrjuðu að framleiða samheitalyf Oxycontins, morfín­lyfs lyfja­fyrir­tækisins Purdue Pharma. 

14 dauðsföll á hálfu ári vegna morfínlyfja

Kristín segir að á fyrri helmingi síðasta árs hafi verið 24 lyfja­tengd dauðsföll á Íslandi og þar af voru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hvers vegna hvaða hagsmuni er verið að verja? Stríðið í úkraníu hefur þegar drepið tugi þúsunda en þetta helvíti fleiri hundruð þúsund eru líffærin hirt úr þessu fólki sem deyr fyrir aldur fram fyrir bragðið???
    0
  • Svanhvít Sigurgeirsdóttir skrifaði
    Dauðsföll vegna tilrauna sprautunnar (Covid-19) fær heldur ekki neina athygli. Þaggað í hel !!
    -4
  • Bergleif Joensen skrifaði
    All ekki nògu mikla athygli það er bara vegna þess að lyfin koma úr apóteki . það ætti að handtaka þessa heildsala dauðans.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Lífeyris­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Lífeyris­sjóðirnir sem fjárfestu í Actavis þegar fyrir­tækið var stórtækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkjunum segjast ekki hafa vitað um skaðsemi og villandi markaðs­setningu morfín­lyfjanna. Íslenskir lífeyris­sjóðir högnuðust um 27 milljarða þegar þeir seldu fjár­festingar­félagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar hlutabréf í Actavis árið 2007, eftir að fyrir­tækið var farið að selja morfínlyf í stórum stíl.
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­ursins

Íslenska lyfja­fyrirtækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóðatöflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúmlega þrjá milljarða taflna. Í byrjun febrúar var greint frá því að fyrir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í ríkinu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylkinu. Eigandi Actavis-félaganna í dag, Teva, viðurkennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæturnar.
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heimilis­lækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynntist OxyContin þegar maðurinn hennar var krabbameins­sjúklingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig langvinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa morfín­lyfjum fyrir samkvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir konunnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því fráhvörfin séu „viðbjóður“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár