Þolendur eigi að stýra endurkomu slaufaðra manna

Menn sem hafa beitt kynbundu ofbeldi eiga ekki heimtingu á því að koma til baka í þær stöður sem þeir viku úr þrátt fyrir að hafa gert yfirbót. Þetta segja Gyða Margrét Péturs­dóttir, Eyja Margrét Brynjars­dóttir og Ólöf Tara Harðar­dóttir.

Það er ekki sjálfsagt að menn sem hefur verið vikið frá eða þeir kosið að víkja sökum þess að þeir hafi brotið gegn konum eigi aftur­kvæmt í sömu stöður og þeir viku úr, jafnvel þó þeir hafi gert yfirbót og sýnt af sér bætta hegðun. Endurkoma þessarar manna þarf að miðast við hvað þolendur þeirra vilja.

Þetta er mat þeirra Gyðu Margrétar Péturs­dóttur, prófessors í kynja­fræði við Háskóla Íslands, Eyju Margrétar Brynjars­dóttur, prófessors í heimspeki við sama skóla og ÓlafarTöru Harðar­dóttur, eins af meðlimum aðgerða­hópsins Öfga. Þær eru gestir í umræðu­þætti Stundarinnar um menn sem vikið hafa vegna ásakana um kynbundið ofbeldi, verið slaufað. Í 150. tölublaði Stundarinnar var rakið að á síðustu tólf mánuðum hafi á fjórða tug karlmanna sagt af sér, verið vikið frá störfum, stigið til hliðar, verið hafnað í ábyrgðar­stöður og landsliðs­verkefni eða verið afbókaðir úr verkefnum vegna ásakana á hendur þeim um ósæmilega hegðun, áreitni, kynbundið ofbeldi eða kynferðis­brot.

Grundvallarbreyting orðin á

Þó eldri dæmi séu til um að mönnum hafi verið slaufað fyrir hegðun af þessu tagi sem hér um ræðir þá má segja að það hafi orðið breyting á í þeim efnum á síðustu mánuðum, í það minnsta eru dæmin um menn sem hefur verið slaufað nú orðin mun fleiri en var áður.

„Breytingin er sú að við sem samfélag erum komin á það stig að það er orðin skilningur á því að það þurfi að skapa rými fyrir þolendur. [...] Þetta er svo mikilvægt. Þess vegna hafa konur verið að segja frá, til að skapa sér þetta rými, til þess að þurfa ekki að hafa gerendur sífellt í andlitinu á sér, þurfa að hlusta á að við sem samfélag séum að mæra þá og skapa þeim sífellt meiri stöðu og meiri völd,“ segir Gyða aðspurð um þá breytingu.

Ólöf Tara segist telja að #metoo-byltingin hafi haft þau áhrif að konur hafi í krafti fjöldans fundið styrkinn í hverri annarri til að segja frá brotum sem þær hafa orðið fyrir. Þá sé einnig orðin breyting á viðhorfi og skilningi samfélagsins á því hverjir það séu sem beiti kynbundnu ofbeldi. „Við erum að krafsa í afskrímsla­væðinguna, þetta eru valda­miklir menn, þetta eru myndar­legir menn, menn sem eru dýrkaðir og dáðir í samfélaginu. Við höfum í svo langan tíma verið á því að gerendur séu skrímsli í húsa­sundum en nú erum við að krafsa í það að þetta eru menn í alls konar stöðum. Ég held að þessi metoo bylting verði til þess að við sjáum betur hvernig hægt er að misbeita völdum með þessum hætti.“

„Þolendur þurfa ennþá meira rými“
Ólöf Tara Harð­ar­dóttir

Eyja Margrét segist telja að sú viðhorfs­breyting nái til sífellt fleiri í samfélaginu og sé að að verða meirihluta­viðhorf, það er að kynbundið ofbeldi sé faraldur sem bregðast verði við. „Það hefur verið sérstak­lega áberandi kannski síðasta árið að karlar hafa verið að tjá sig um þessi mál, sýna að þeim standi ekki á sama og taki það til sín að gera eitthvað í málunum. Auðvitað eru það aldrei allir en ég held að við höfum séð aukningu þar.“ Engu að síður sé sú barátta sem á sér stað eftir sem áður leidd af konum og kvenna­hreyfingum, um það eru viðmælendur allar sammála. Hins vegar sé afar mikilvægt að víkka umræðuna sem mest út. „Við þurfum alla með okkur, við þurfum öll kyn og fleiri raddir inn í umræðuna, fleiri vinkla. Ofbeldi birtist í svo mörgum kimum samfélagsins. Ég veit til að mynda að þau sem eru kynsegin upplifa sig svolítið útundan í þessari baráttu því orðræðan er svo kynjuð,“ segir Ólöf Tara.

Vantraust á réttarkerfinu áhrifaþáttur

Ein skýringin á því hvernig #metoo hreyfingin sprakk út og hefur verið viðvarandi síðustu ár, sem meðal annars hefur skilað því að mönnum hafi verið slaufað eftir að greint hefur verið frá brotum þeirra, er að mati viðmælenda vantrú þolenda á réttar­kerfið, á lögreglu og réttar­vörslu­kerfið í heild sinni. Þær Gyða, Eyja Margrét og Ólöf Tara segja enda að sagan sýni að sú vantrú sé réttmæt. Ólöf Tara segir að margir þeirra þolenda sem Öfgar hafi verið í samskiptum við hafi látið reyna á réttar­kerfið en margir hafi hins vegar ekki látið á það reyna, vegna sögunnar og hvernig það hafi brugðist þolendum í gegnum tíðina. „Samfélags­umræðan er núna meira styðjandi við þolendur en þó menn séu núna að stíga til hliðar eigum við enn töluvert í land. Þolendur þurfa ennþá meira rými.“

„Það er ekki sjálf­krafa hægt ganga aftur inn í fyrra hlut­verk eða starf“
Eyja Margrét Brynjars­dóttir

En það dugar ekki bara til að menn víki frá, og komi svo kannski til baka í sömu stöður og þeir áður gengdu að tilteknum tíma liðnum eins og hvít­þvegnir englar. Þeir sem hafa orðið uppvísir að því að beita kynbundnu ofbeldi þurfa með einhverjum hætti að gera alvöru yfirbót. „Númer eitt þurfa þeir strax að láta af þessari hegðun og aldrei endurtaka hana. Það sem ég myndi helst vilja sjá er að þeir sem hafi brotið af sér fókusi á hvernig þeir geti orðið betri menn og lært að hegða sér með tilhlýðilegum hætti. Það er það sem raun­veruleg iðrun og yfirbót snýst um, ekki hvað þarf að gera til að geta fengið gamla djobbið sitt aftur. [...] Það er ekki sjálf­krafa hægt ganga aftur inn í fyrra hlutverk eða starf, það getur verið allur gangur á því hvort það sé raunhæft markmið. Það hefur auðvitað gerst hjá alls konar fólki í gegnum söguna að fólk hefur tapað einhverri forréttinda­stöðu sem það hefur haft út af hneykslis­máli, út af ásökunum, út af einhverju. Stundum hafa það verið réttmætar ásakanir, stundum ekki, en fólk hefur tapað mannorði sínu. Það getur haft miklar afleiðingar og það er ekki endilega hægt að panta það til baka eftir kannski sex mánuði og ætlast til að fá allt til baka, það er ekki þannig sem þetta virkar,“ segir Eyja Margrét.

Þær Gyða, Eyja Margrét og Ólöf Tara segja að þrátt fyrir að menn sem hafi brotið af sér geri yfirbót, sýni raun­verulega að þeir hafi bætt sig og séu orðnir breyttir og betri menn sé endurkoma þeirra ekki sjálfsögð. Þeir eigi ekki endilega heimtingu á því að koma til baka og setjast í ábyrgðar­stöður, stýra fyrir­tækjum, keppa fyrir Íslands hönd í íþróttum eða marka sér sess í menningar­lífi. „Þeir eiga ekkert tilkall til að komast aftur í valda­stöður sem gerir þeim auðveldara fyrir að beita ofbeldi og misbeita valdi sínu. [...] Mér finnst þetta þurfa að miðast við hvað þolendur vilja og þetta samtal þurfi að vera við þolendur, ef þeir eru tilbúnir í það samtal,“ segir Ólöf Tara.  

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Viku vegna ásakana

GreiningViku vegna ásakana

„Það er ekki endilega fengur að því að fá þessa menn aftur“

„Ekkert af þessu er þannig að þolandi sé einhvers staðar að poppa kampavíns­flösku,“ segja sérfræðingar um þá þróun að sífellt fleiri karlmenn víkja vegna ásakana um óásættanlega framkomu gagnvart konum. Alls hafa 31 nafn­greindir menn þurft að sæta afleiðingum á síðasta ári, en leiðin til baka veltur á viðbrögðunum og þarf að gerast í samráði við þolendur.

17 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár