Segir íbúa Úkraínu fasta í martöð: „Við munum berjast til síðasta blóðdropa“

Olga Dibrova, sendi­herra Úkraínu gagn­vart Íslandi, segir að íbúar Úkraínu séu fastir í martröð og vilji vakna til veru­leika þar sem þeir hafi end­ur­heimt landið sitt. Hún segir að her Úkraínu og íbúar lands­ins, konur og karlar, muni ef til kemur berj­ast til síð­asta blóð­dropa þannig að ,,hið illa” muni ekki sigra. Eina ósk íbúa Úkraínu sé að lifa í frið­sömu landi.

<span>Segir íbúa Úkraínu fasta í martöð: </span>„Við munum berjast til síðasta blóðdropa“
Olga Dibrova sendi­herra Úkraínu gagn­vart Íslandi segir enn óvíst hve margt fólk dó í árásum Rússa á Úkraínu í dag en að þús­undir hafi dáið síð­ustu daga þeirra á meðal tólf börn. Mynd: Aron Daði

Olga Dibrova, sendi­herra Úkraínu gagn­vart Íslandi, afhenti skip­un­ar­bréf sitt síð­degis og hélt að því loknu blaða­manna­fund í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Hún sagði þar að íbúar Úkraínu hefðu síð­ustu daga þurft að læra að vera til í nýjum veru­leika þar sem þeim kæmi ekki dúr á auga og þar sem tár íbúa lands­ins hefðu runnið í stríðum straumi.

„En núna er þjóðin hætt að gráta vegna þess að hún þarf að verja landið sitt. Og við munum berj­ast til síð­asta blóð­dropa til að verja landið og ég er ekki aðeins að tala um her­menn því að óbreyttir borg­arar, konur og karlar hafa gripið til vopna,“ sagði Olga Dibrova á blaða­manna­fund­inum í dag.  

Olga Dibrova segir að kjarn­orkuógnin sé raun­veru­leg. Það hafi í fyrstu verið erfitt að trúa því að ráð­ist hefði verið inn í Evr­ópu­land á 21 öld­inni. Það sé hins vegar stað­reynd.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár