Pútín hótar því sem aldrei hefur sést

Vladímír Pútín vís­aði til bar­áttu gegn nas­isma og Banda­ríkj­anna sem „heims­veldis lyga“, eftir að hann fyr­ir­skip­aði alls­herj­ar­inn­rás í Úkraínu. Hann varar við því að honum verði veitt mót­spyrna.

Pútín hótar því sem aldrei hefur sést
Spreng­ingar nærri Kharkiv Rússar réð­ust meðal ann­ars á her­flug­völl í Chuguyev nærri Kharkiv í aust­ur­hlut­anum. Mynd: AFP

Eftir að hafa þrá­fald­lega þrætt fyrir áform um inn­rás í Úkraínu, þrátt fyrir mik­inn liðs­söfnuð við landa­mærin, fyr­ir­skip­aði Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti her­deildum að ráð­ast á landið úr mörgum áttum í nótt. Pútín lýsti árás­unum sem sér­tækum aðgerðum og fyr­ir­skip­aði Úkra­ínu­mönnum að veita enga mót­spyrnu, heldur leggja niður vopn. „Nató styður úkra­ínska nýnas­ista ... Aðgerðir okkar eru sjálfs­vörn gegn ógnum,“ sagði Pútín í nótt.

Spreng­ingar heyrð­ust í nótt Kharkiv, Kramatorsk og Dnipro í austri, í Odessu og Kherson í suðri, og höf­uð­borg­inni Kyiv í norðri. Úkraínsk yfir­völd segja meira en 40 her­menn hafa lát­ist og upp undir 10 óbreytta borg­ara.

„Hver sem reynir að trufla okkur, eða að ógna landi okkar og þjóð, verður að vita að and­svar Rúss­lands verður taf­ar­laust og leiðir yfir ykkur afleið­ingar sem þið hafið aldrei upp­lifað í sögu ykkar. Við erum til­búin í hvað sem er,“ sagði Pútín í ávarpi sínu í nótt.

Fórn­ar­lamb loft­árásaMaður hylur annan, sem lést í loft­árás í nótt, með teppi nærri Chuguiv í aust­ur­hluta Úkraínu.
Slasaður eftir loft­árásSlasaður maður bíður hjálpar nærri Chuguiv í aust­ur­hluta Úkraínu.

Pútín sagði hern­að­ar­að­gerð­irnar vera „spurn­ingu um líf og dauða“ vegna útþenslu Nató. „Þetta er rauða línan sem ég hef oft talað um. Þeir eru komnir yfir hana,“ sagði Pútín. Hann vitn­aði til aðgerða Nató í Júgóslavíu 1999 og inn­rásar Banda­ríkj­anna í Írak 2003, máli sínu til stuðn­ings, og sagði að Banda­ríkin væri „heims­veldi lyga“. 

Þá rétt­lætti Pútín inn­rás­ina með því að hann væri að hreinsa Úkraínu af nas­isma. Áður hefur hann skil­greint Úkraínu sem sköp­un­ar­verk Rússa og efast um til­vistar­rétt rík­is­ins. Und­an­farið hefur hann síðan end­ur­tekið ásak­anir um þjóð­ar­morð Úkra­ínu­manna í Donbass.

Úkraínsk yfir­völd full­yrtu að þau hefði skotið niður fimm her­flug­vélar og eina þyrlu.

Í gær­kvöldi beindi Volodymir Zelenski, for­seti Úkraínu, orðum sínum til rúss­nesku þjóð­ar­innar og sagði að hún ein gæti stöðvað órétt­mæta árás.

Í morgun flutti hann ávarp til úkra­ínsku þjóð­ar­innar. Þar sagði hann Rússa hafa ráð­ist á Úkraínu með slægum hætti og hegðað sér líkt og Adolf Hitler gerði í upp­hafi Seinni heims­styrj­aldar. Hann sagði Rússa vera á „veg­ferð illsku“.

Kyiv í morgunHópur fólks bíður við hrað­banka til að taka út reiðufé.
Biðröð við bens­ín­stöðUmferð­ar­öng­þveiti mynd­að­ist á leið úr Kyiv í morgun.
Á lest­ar­stöð­inniKonur á Kyiv-Pasazhyrskyi lest­ar­stöð­inni í morgun. Loft­varn­ar­sírenur hljóð­uðu í mið­borg­inni í dag eftir að Rússar hófu stór­skota­liðsárás og eld­flauga­árásir að fyr­ir­skipan Pútíns.

Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Ursula von der Leyen, boð­aði harðar refsi­að­gerðir. „Við munum frysta eignir Rússa í Evr­ópu­sam­band­inu og stöðva aðgengi rúss­neskra banka að evr­ópskum fjár­mála­mörk­uðum,“ sagði hún. „Við for­dæmum þessa villi­manns­legu árás og þau ill­kvittnu rök sem notuð eru til að rétt­læta hana.“

Þá sagði hún: „Við munum ekki leyfa Pútín for­seta að inn­leiða vald­beit­ingu og ósvífni í stað alþjóða­laga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár