Svar við spurningum Bjarna: Án frjálsrar blaðamennsku þrífst ekkert lýðræði

Lagaleg sér­staða blaða- og frétta­manna í störfum sínum ætti að vera skýr sam­kvæmt Blaða­manna­fé­lagi Íslands og Félagi frétta­manna, sem segja sér ljúft og skylt að svara spurn­ingum sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra varp­aði fram í gær varð­andi stöðu blaða­manna sem fá rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Svar við spurningum Bjarna: Án frjálsrar blaðamennsku þrífst ekkert lýðræði

„Eru fjöl­miðla­menn of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar?“ spurði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær­kvöldi: „Hvernig getur það talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?“

Í stöðu­upp­færslu á Facebook fjall­aði Bjarni um þá stöðu að lög­reglu­stjór­inn á Norð­ur­landi Eystra hefur kallað fjóra blaða­menn í yfir­heyrslu þar sem þeir fá rétt­ar­stöðu sak­born­ings á grund­velli brota á frið­helgi einka­lífs vegna umfjöll­unar um skæru­liða­deild Samherja. Blaða­manna­fé­lagið og Félag frétta­manna hafa nú sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þessum spurn­ingum og öðrum í stöðu­upp­færslu Bjarna er svarað. Yfir­lýs­ing félag­anna tveggja er birt í heild sinni hér að neðan er þar er meðal ann­ars bent á að sem ein­stak­lingar séu blaða- og frétta­menn jafnir öðrum að lögum, „til dæmis ef þeir eru grun­aðir um ölv­un­arakstur, fjár­svik eða ofbeld­is­brot.“ Um störf þeirra gegni hins vegar öðru máli, um þau gildi önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlut­verks fjöl­miðla í lýð­ræð­is­ríki. Frelsi blaða­manna til að fjalla um mik­il­væg frétta­mál og veita vald­höfum aðhald séu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi lífs­nauð­syn­leg, án þess þrí­fist ekki lýð­ræði. Að auki eru blaða­menn ein fárra stétta sem er óheim­ilt sam­kvæmt lögum að svara spurn­ingum er varða heim­ild­ar­menn og fyrir því séu ríkar ástæður.

Í því ljósi sam­þykkti Alþingi breyt­ing­ar­til­lögu á lögum um kyn­ferð­is­lega frið­helgi þar sem kveðið var á um að ákvæði um brot á frið­helgi einka­lífs ætti ekki við þegar hátt­semin væri rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna. Bjarni var á meðal þeirra þing­manna sem greiddu atkvæði með laga­breyt­ing­unni. Eins hefur komið fram að blaða­menn­irnir hafi verið boð­aðir í skýrslu­töku með vísan í meint brot gegn frið­helgi einka­lífs, en Bjarni dregur það í efa í stöðu­upp­færsl­unni, gagn­rýnir frétta­flutn­ing af mál­inu því hann hafi byggt á orðum þeirra sem var gefið að sök að hafa framið brot. „Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?” spurði Bjarni, sem gagn­rýndi fleiri atriði við frétta­flutn­ing RÚV. Til að mynda það að rætt hafi verið lög­mann sem taldi ólík­legt að gefin yrði ákæra á hendur blaða­mönnum á grund­velli þeirra laga­greina sem vísað var til í boð­un­inni. Velti hann því síðan upp hvort það væri eitt­hvað sér­stak­lega íþyngj­andi fyrir blaða­menn að fá rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna frétta­flutn­ings, „er það mjög íþyngj­andi?“ spurði hann, „meira íþyngj­andi en almennir borg­arar þurfa að þola í málum sem eru til rann­sóknar lög­reglu?“ Þeir sem hefðu hreinan skjöld gætu mætt óhræddir til lög­reglu og þar væru sum mál felld niður, önnur færu í ákæru, sýknað í sumum, sak­fellt í öðrum. „Þarf öll þessi stór­yrði áður en lög­reglan spyr fyrstu spurn­ing­ar­innar undir rann­sókn máls­ins?“

Svar við spurningum Bjarna

Hér að neðan er yfir­lýs­ing Blaða­manna­fé­lags Íslands og Félags frétta­manna: 

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fjall­aði í gær á Facebooksíðu sinni um þá ákvörðun lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra, að boða fjóra blaða- og frétta­menn í yfir­heyrslu með rétt­ar­stöðu sak­born­inga, vegna umfjöll­unar um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja. Þar setti hann fram þessar spurn­ingar:

Eru fjöl­miðla­menn of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar? Hvernig getur það talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?

Okkur er bæði ljúft og skylt að svara þess­ari spurn­ingu.

Blaða- og frétta­menn eru sem ein­stak­lingar jafnir öðrum að lögum, t.d. ef þeir eru grun­aðir um ölv­un­arakstur, fjár­svik eða ofbeld­is­brot. Um störf þeirra gegnir hins vegar öðru máli. Um þau gilda önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlut­verks þeirra.

Frelsi blaða­manna til að fjalla um mik­il­væg frétta­mál og veita vald­höfum aðhald eru lýð­ræð­is­sam­fé­lag­inu lífs­nauð­syn­leg. Án frjálsrar blaða­mennsku þrífst ekk­ert lýð­ræði. Blaða­mennska getur verið, og á að vera óþægi­leg fyrir fólk, stofn­anir og fyr­ir­tæki í valda­stöðum, því hún afhjúpar mis­tök, bresti og spill­ingu í kerf­inu. Til þess að greina frá slíkum brestum getur verið nauð­syn­legt að nota gögn sem ekki hefur verið aflað með lög­mætum hætti. Dóm­stólar hafa stað­fest að notkun blaða­manna á slíkum gögnum geti sam­ræmst hlut­verki þeirra að taka við og miðla upp­lýs­ingum sem erindi eiga við almenn­ing.

Það liggur í eðli valds­ins að verj­ast, og hand­hafar þess geta freist­ast til að tak­marka frelsi fjöl­miðla til að fjalla um þá með gagn­rýnum hætti. Þessi freistni­vandi hefur valdið óheilla­þróun í ríkjum eins og Póllandi og Ung­verja­landi, þar sem lög­reglu hefur verið beitt til að yfir­heyra og ákæra blaða­menn sem reynst hafa vald­höfum óþægur ljár í þúfu. Þessi vald­beit­ing gegn blaða­mönnum, ásamt veik­burða og eins­leitu fjöl­miðlaum­hverfi, hefur veikt und­ir­stöður lýð­ræð­is­ins í þessum ríkjum enn frekar.

Íslend­ingar hafa, eins og margar aðrar lýð­ræð­is­þjóðir, slegið ákveðna varnagla til að tryggja blaða­mönnum athafna­frelsi til að sinna störfum sínum. Þá má t.d. finna í lögum um fjöl­miðla, þar sem blaða­mönnum er bein­línis bannað að rjúfa trúnað við heim­ild­ar­menn sína, hafi þeir óskað nafn­leyndar:

25. gr.

Starfs­mönnum fjöl­miðla­veitu sem hlotið hafa leyfi eða skrán­ingu hjá fjöl­miðla­nefnd er óheim­ilt að upp­lýsa hver sé heim­ild­ar­maður að grein, riti, frá­sögn, til­kynn­ingu eða öðru efni, hvort sem það hefur birst eða ekki, hafi heim­ild­ar­maður eða höf­undur óskað nafn­leyndar. Starfs­mönnum fjöl­miðla­veitu er jafn­framt óheim­ilt að láta af hendi gögn sem hafa að geyma upp­lýs­ingar um heim­ild­ar­mann eða höf­und í slíkum til­vikum.

Blaða­menn eru sömu­leiðis ein fárra stétta sem sam­kvæmt lögum um með­ferð einka­mála og saka­mála er óheim­ilt að svara spurn­ingum um heim­ild­ar­menn sína og það sem þeim hefur verið trúað fyrir í starfi. Fyrir þess­ari sér­stöku stöðu blaða­manna, sem við­ur­kennd er í lögum um bæði með­ferð einka­mála og saka­mála, eru gildar ástæður.

Árið 2021 var almennum hegn­ing­ar­lögum breytt, og bætt við þau ákvæðum um æru­meið­ingar og brot gegn frið­helgi einka­lífs. Þau höfðu ekki áður verið refsi­verð. Nýju ákvæðin hljóða svo:

228. gr.

Hver sem brýtur gegn frið­helgi einka­lífs ann­ars með því að hnýs­ast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heim­ild­ar­leysi skjölum, gögnum, myndefni, upp­lýs­ingum eða sam­bæri­legu efni um einka­mál­efni við­kom­andi, hvort heldur sem er á staf­rænu eða hlið­rænu formi, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári, enda sé hátt­semin til þess fallin að valda brota­þola tjóni.

Sömu refs­ingu varðar það að ónýta eða skjóta undan einka­gögnum þeim, sem nefnd eru í 1. mgr.

Sektum eða fang­elsi allt að 3 mán­uðum skal sá sæta, sem hnýs­ist í hirslur ann­ars manns án nægi­legra ástæðna.

Ákvæði 1.–3. mgr. eiga ekki við þegar hátt­semin er rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna. [Feitletr. höf.]

229. gr.

Hver sem í heim­ild­ar­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða for­ritum ann­arra sem geymd eru á tölvu­tæku formi skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við þegar hátt­semin er rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna. [Feitletr. höf.]

Feit­letr­uðu máls­grein­unum var bætt inn til að tryggja að nýju ákvæðin höml­uðu ekki störfum og tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla.

Lagaleg sér­staða blaða- og frétta­manna í störfum sínum ætti því að vera skýr. Vandséð er hverju blaða- og frétta­menn­irnir fjórir geta svarað umfram það í yfir­heyrslum hjá lög­reglu.

Því er við að bæta, að margar hættur steðja að frjálsri og óháðri blaða- og frétta­mennsku á Íslandi. Frétta­miðlar eru fáir og eins­leitir, og starf­andi blaða- og frétta­mönnum fækk­aði um tæpan helm­ing á árunum 2018-2020. Í nýlegri rann­sókn Worlds of Journalism Study kom í ljós að 45% íslenskra blaða- og frétta­manna höfðu upp­lifað hót­anir eða ógn­anir í starfi á und­an­förnum fimm árum. 16% höfðu orðið fyrir umsát­ursein­elti, og 15% verið lög­sótt vegna starfa sinna.

Við þessar þröngu starfs­að­stæður bæt­ist nú sú ógn að lög­regla boði blaða- og frétta­menn til yfir­heyrslu með rétt­ar­stöðu sak­born­ings fyrir hegn­ing­ar­laga­brot, fyrir það eitt að stunda vinnu sína.

Blaða­manna­fé­lag Íslands og Félag frétta­manna ítreka stuðn­ing sinn við þá blaða- og frétta­menn sem hafa verið boð­aðir til yfir­heyrslu með rétt­ar­stöðu sak­born­inga vegna starfa sinna, og hvetja vald­hafa til að standa vörð um frjálsa fjöl­miðlun í land­inu, frekar en að freist­ast til að ráð­ast gegn henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér finnst of mikið af tilfinningum í þessu máli, við þurfum meira af skynsemi. Í fyrsta lagi segir ályktun Blaðamannafélagsins allt sem segja þarf.
    Í öðru lagi er orðið skæruliði samkvæmt Íslenskri orðabók hermaður í óreglulegum hernaði en það þýðir að skæruliði er ofbeldismaður. Eitt dæmi um skæruliðahernað var Rauða herdeildin (Rote Armeefracktion) í Þýskalandi ósællar minningar. Hafa lögregluvöld á Íslandi fylgst með starfsemi svokallaðar "Skæruliðadeildar" sem kallar sig svo (hvaða fyrirtæki sem hún tengist)?
    Er lögreglan í alvöru að yfirheyra fréttamenn fyrir það að reyna að upplýsa um ofbeldissamtök? Bjarni Benediktsson heldur að lesendur blaða séu of einfaldir til að átta sig á hversu gagnsæjar spurningar hans eru. Þær eru að formi og innhaldi líkar þeim sem heyrst hafa frá mönnum eins og Pútin, Erdogan, Orban og fleirum. Tilgangurinn er að strá sandi í augun á fólki og dylja hluti sem ekki eiga að fréttast.
    1
  • Það er svo kristalstært í þessu ati Bjarna með hverjum hann er í liði að það jaðrar við að vera opinskátt í anda spilltra pólitíkusa. Hér veður hann áfram eins og naut í flagi á fullkomlega ósvífinn og heimskulegur. Er ekki komið nóg?
    1
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    ...Pravda.
    -1
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Bjarni Bein er að afhúpa hver hann er í raun og veru ,eða varhundur manna eins og voru með áróður gegn ákveðnum blaðamönnum ,með hótunum og hotunum um að gera þeirra fjölskildur eitthvert ógann .
    Bjarni ben er samsagt að verja glaðamensku Samherjamanna og aför svolkallaðra skaeruliða Samherjamanna við að níða skóinn af fréttamönnum og leggja þá í einelti .
    Málið snýst ekkert um stolin síma af einhverjum lasnum skipstrjóra í öndunar vel á sjúkrahúsi (kanski með kóvít hvar veit ),og hann á að passa símann sin ef hann er svona mikilvaegur .
    Það er eigin nílunda að stolið sé símum .
    En stolin sími og liflátsagerð ganveta manni sem blandaður er í eitt staersta brotamál ganvart fiskveiðum á íslandi .
    Þessi skipstjóri er í ákveðni krísu og aetti að vera í vitnavernd hjá vinum sínum á Akureyri .
    En þeta mal sínir bara Í HNOTSKURN FYRIR HVERN BJARNI FURSTI AF EINGEY ER AÐ VINNA
    4
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Sem flokksformaður verður Bjarni að sýna að hann geri sitt til að verja samherjana, helstu styrktaraðila flokksins ljóst og leynt. "Æ er gjöf til gjalds".
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár