Stjórn SÁÁ boðuð á aukafund vegna kröfu Sjúkratrygginga um 174 milljóna króna endurgreiðslu

Nokkrir í 48 manna aðal­stjórn SÁÁ gagn­rýna að hafa ekki fengið að sjá bréf eft­ir­lits­deildar Sjúkra­trygg­inga Íslands þar sem gerðar eru alvar­legar athuga­semdir við þús­undir reikn­inga frá SÁÁ. Sam­tök­unum er gert að end­ur­greiða Sjúkra­trygg­ingum 174 millj­ónir króna. Einar Her­manns­son, for­maður SÁÁ, hefur boðað stjórn sam­tak­anna á auka­fund í næstu viku vegna máls­ins.

Stjórn SÁÁ boðuð á aukafund vegna kröfu Sjúkratrygginga um 174 milljóna króna endurgreiðslu
Auka­fundur vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands Einar Her­manns­son, for­maður SÁÁ hefur boðað til auka­fundar aðal­stjórnar SÁÁ

Stundin hefur í dag fjallað ítar­lega um skoðun eft­ir­lits­deildar Sjúkra­trygg­inga á starfs­háttum SÁÁ og nið­ur­stöðu þeirrar skoð­unar en í henni eru meðal ann­ars gerðar alvar­legar athuga­semdir við þús­undir reikn­inga sem sam­tökin sendu til Sjúkra­trygg­inga og fengu greidda og stand­ast ekki skoðun að mati eft­ir­lits­deildar Sjúkra­trygg­inga Íslands. Stundin óskaði eftir því við Sjúkra­trygg­ingar Íslands að fá afrit af bréf­inu í byrjun vik­unnar og hefur það verið sam­þykkt hjá SÍ en SÁÁ þarf að gefa leyfi til að bréfið verði afhent og Einar Her­manns­son, for­maður SÁÁ sagði í sam­tali við Stundina að frestur sem SÁÁ fær til að afhenda bréfið verði nýttur og því verði það ekki afhent fyrr en 17. jan­úar næst­kom­andi. Hann stað­festi hins vegar að gerðar væru alvar­legar athuga­semdir við þús­undir reikn­inga sem sam­tökin sendu til Sjúkra­trygg­inga og fengu þá greidda. Nú sé þeim gert að end­ur­greiða Sjúkra­trygg­ingum Íslands 174 millj­ónir króna.  Mál­ið er kom­ið inn á borð Land­lækn­is.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Hansson skrifaði
    "Þá var bent á að bæði bréfið sem eftirlitsdeild SÍ sendi SÁÁ í sumar og bréfið með niðu
    Sjá einnig
    Sjúkratryggingar krefja SÁÁ um 174 milljónir í endurgreiðslu

    rstöðu eftirlitsdeildarinnar frá í lok desember sé stílað á SÁÁ en berist til Einars Hermannssonar formanns. Því sé ekki hægt að líta svo á að bréfið sé til formanns heldur sé það til allrar stjórnar SÁÁ og honum beri skylda til að afhenta aðalstjórninni það umsvifalaust."

    Sömu vinnubrögð og Eflingarforystan fyrrum notaði !!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ
Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjón­ust­unni en ekki starfs­fólkið segir for­stjóri SÍ

María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga segir að nið­ur­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítar­lega skoðun og SÍ hafi verið skylt að til­kynna málið til hér­aðs­sak­sókn­ara. Ábyrgð á þjón­ust­unni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki ein­stakra starfs­manna. Hún segir afar ómak­legt að Ari Matth­í­as­son, starfs­maður Sjúkra­trygg­inga hafi verið dreg­inn inn í umræð­una og sak­aður um ómál­efna­leg sjón­ar­mið.
Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmdastjórnar SÁÁ
Fréttir

Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ

Auka­fundi stjórnar SÁÁ sem boðað var til vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands lauk rétt í þessu. Á fund­inum var lýst yfir fullu trausti á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­endur og starfs­fólk sam­tak­anna. Í ályktun sem sam­þykkt var segir meðal ann­ars, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almenn­ings á sam­tök­unum.
Segja yfirlýsinguna ekki í nafni alls starfsfólks SÁÁ
Fréttir

Segja yfir­lýs­ing­una ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk sam­tak­anna áður en hún var send til fjöl­miðla í gær, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vit­undar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár