643. spurningaþraut: Snjókoma kennd við útlimi á dýri

643. spurningaþraut: Snjókoma kennd við útlimi á dýri

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða þjóð gerði lág­mynd­ina sem hér að ofan sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Dublin?

2.  Hvaða heims­álfa er að með­al­tali hæst yfir sjáv­ar­máli?

3.  Mikil og stór­flyg­sótt snjó­koma í logni ber sér­kenni­legt heiti sem dregið er af útlimum dýrs. Hvaða heiti er það?

4.  Nóbels­verð­launin í bók­menntum hafa verið veitt á haustin ár hvert frá 1901 — að und­an­skildum sjö árum hér og þar af góðum og gildum ástæðum. Hvaða ár féllu Nóbels­verð­launin í grein­inni fyrst niður? (Og já, þið eigið að geta giskað á þetta!)

5.  Hvaða tvö stór­veldi átt­ust helst við í hinu svo­nefnda kalda stríði?

6.  Bruce Lee var karl einn sem lést 1973, aðeins 32 ára gam­all. Hann var kunnur fyrir ... hvað?

7.  Werner Gerlach hét karl nokkur sem var hand­tek­inn í Reykja­vík 10. maí 1940. Hver var hann?

8.  Hverjir eru hinir alþjóð­legu ein­kenn­is­stafir íslenskra flug­véla?

9.  Hvað var eina land­spen­dýrið sem bjó á Íslandi þegar menn sett­ust hér fyrst að?

10.  Hverju söfn­uðu Grimm-bræður?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Írland.

2.  Suð­ur­skauts­landið.

3.  Hunds­lappa­drífa.

4.  1914 — þegar fyrri heims­styrj­öldin var skollin á.

5.  Sov­ét­ríkin og Banda­ríkin.

6.  Karete og aðrar bar­daga­í­þróttir.

7.  Ræð­is­maður Þjóð­verja í Reykja­vík.

8.  TF.

9.  Refurinn.

10.  Þjóð­sögum og ævin­týrum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er lág­mynd gjörð af Assyr­íu­mönnum. Ekkert annað svar er rétt.

Á neðri mynd­inni er Camilla her­toga­ynja af Cornwall, en Camilla Barker-Bowles telst líka full­gilt svar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár