644. spurningaþraut: Kokkteill, ránfugl, Blanda og verðlaunahöfundar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er stærsti rán­fugl í heimi?

2.  Hversu margir Banda­ríkja­for­setar hafa verið myrtir í emb­ætti?

3.  Mojito nefnd­ist kokk­teill sem oft­ast hefur að geyma romm, límónu­djús, sóda­vatn og mintu. Í hvaða landi í Kar­ab­íska haf­inu er mojito upp­runn­inn?

4.  Úti í hvaða fjörð, flóa, vík eða vog fellur áin Blanda?

5.  Íslensku bók­mennta­verð­launin í flokki skáld­verka fyrir full­orðna hafa verið veitt frá 1989. Hall­grímur Helgason fékk þau á dög­unum í þtiðja sinn en hver er eini höf­und­ur­inn sem hefur fengið verð­launin tvisvar í þessum flokki?

6.  Í hvaða landi er borgin Lyon?

7.  En í hvaða landi er lengsti skipa­skurður í heimi?

8.  Hvað hét faðir Mar­grétar 2. Dana­drottn­ingar?

9.  Hversu margir eru tafl­menn­irnir á skák­borði áður en nokkur hefur verið drep­inn?

10.  Tveir af núver­andi þing­mönnum Sam­fylk­ingar hafa gegnt ráð­herra­emb­ætti. Nefnið að minnsta kosti annan.

***

Seinni auka­spurn­ing:

En hver er konan hér fyrir neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kon­dór­inn í And­es­fjöllum. Ekki þarf þó að nefna And­es­fjöllin.

2.  Fjórir.

3.  Kúbu.

4.  Húnaflóa. Reyndar er Húna­fjörður enn nákvæmara svar, en Húnaflói dugar.

5.  Guð­bergur Bergsson.

6.  Frakk­landi.

7.  Kína.

8.  Friðrik.

9.  32.

10.  Oddný Harð­ar­dóttir (fjár­mála­ráð­herra) og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir (umhverf­is­ráð­herra).

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Móðir Teresa en á þeirri neðri Guðrún Ýr eða GDRN.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár