632. spurningaþraut: Stjórnarskrá, flóðsvín, Vigdís og ævafornt fyrirtæki

632. spurningaþraut: Stjórnarskrá, flóðsvín, Vigdís og ævafornt fyrirtæki

Hér er fyrri auka­spurn­ingin, mér finnst ég hafa spurt að þessu áður, en hér er hún:

Hvaða dýr má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ár fengu Íslend­ingar fyrstu stjórn­ar­skrá sína?

2.  Chișinău heitir höf­uð­borg Evr­ópu­ríkis eins, þótt hluti íbú­anna, sem eru af öðrum upp­runa en meiri­hlut­inn, kalli hana Kisinév. Hvaða ríki er þetta?

3.  Flóðsvín eru stærsta teg­undin í til­teknum ætt­bálki spen­dýra. Hvað nefn­ist sá ætt­bálkur?

4.  Ætt­bálkar spen­dýra eru ann­ars um eða um yfir 40, en 40 pró­sent allra spen­dýra­teg­unda til­heyra hina vegar einum og sama ætt­bálknum. Hver er sá?

5.  Hversu lengi var Vigdís Finn­boga­dóttir for­seti Íslands?

6.  Elsta fyr­ir­tæki heims sem enn starfar var stofnað árið 578 og heitir Kongo Gumi. Það var fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki í rúm 1.400 ár en 2006 lenti fjöl­skyldan í vand­ræðum og Kongo Gumi varð hluti af stærri sam­stæðu. Það starfar þó enn sjálf­stætt innan sam­stæð­unnar. Í hvaða landi starfar þetta ævaforna fyr­ir­tæki?

7.  Hvað þýðir orðið „mujahideen“?

8.  Fátítt er en ekki óþekkt að kunnir íþrótta­menn setj­ist á þing.  Árið 1971 sett­ist ungur lög­fræð­ingur á þing en hann var þá fyrst og fremst kunnur fyrir fót­boltafimi sína. Og hann heitir ...?

9.  For­eldrar hans hétu hans Bors og Bestla. Hann átti tvo bræður sem hétu Vilji og Vé en þeir komust ekki í hálf­kvisti við hann. Hver var hann?

10.  Í hvaða skáld­sögu frá 1948 fannst sumum að gengið væri heldur nærri for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ólafi Thors?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá leik­ara úr geysi­vin­sælli sýn­ingu Þjóð­leik­húss­ins frá árinu 1991, kæra Jelena hét verkið. Hvað heita leik­ar­arnir þrír? Nefna þarf þau öll.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  1874.

2.  Moldova.

3.  Nagdýr.

4.  Nagdýr.

5.  Sextán ár.

6.  Japan.

7.  Stríðs­maður guðs (Allah), heil­agur stríðs­maður, eða eitt­hvað í þá átt­ina. Upp­runa­leg merk­ing mun vera „bar­áttu­menn fyrir lög­máli guðs“ eða eitt­hvað þvíum­líkt, en þar sem orðið er nær ein­göngu notað nú um stríðs­menn af ýmsu tagi, þá telst það rétt.

8.  Ellert Schram.

9.  Óðinn.

10.  Atóm­stöð­inni eftir Halldór Laxness.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er bletta­tígur.

Á neðri mynd­inni má sjá Halldóru Björns­dóttur, Baltasar Kormák og Ingvar Sig­urðs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár