Ari Edwald í leyfi frá Ísey vegna ásakana á samfélagsmiðlum

Ari Edwald, framkvæmda­stjóri Ísey útflutnings, systur­félags Mjólkur­samsölunnar, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta stað­festir stjórnar­formaður fyrir­tækjanna, sem segir Ara hafa sjálfan óskað eftir leyfinu. Er það vegna ásakana ungrar konu um að hann hafi ásamt hópi annarra farið yfir mörk í sumar­bústaða­ferð.

Framkvæmdastjórinn
Fram­kvæmda­stjór­inn Ari hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri Ísey útflutn­ings, sem fer með erlenda starf­semi og útflutn­ing sem áður heyrði undir Mjólk­ur­sam­söl­una, um ára­bil. Óljóst er hvenær hann snýr aftur til starfa.

„Ari Edwald hefur óskað eftir að fara í leyfi. Hann óskaði eftir því sjálfur,“ segir Elín Margrét Stef­ánsdóttir, stjórnar­formaður Ísey útflutnings. Nafn Ara var meðal þeirra sem Vítalía Lazareva birti á Instagram seint á síðasta ári þar sem hún tjáði sig um kynferðis­ofbeldi sem hún sagðist hafa verið beitt í sumar­bústaða­ferð í desember 2020.

Vítalía kom nýlega fram í viðtali í hlaðvarps­þættinum Eigin konur þar sem hún lýsti atburðum án þess að nafn­greina að nýju þá menn sem hún sakar um að hafa brotið á sér. Ekki liggur ljóst fyrir nákvæmlega í hverju ásakanirnar gagnvart Ara liggja en í Instagram-færslu frá því í október er Ari nefndur ásamt þremur öðrum. 

„Yfir öll mörk“

Í þættinum lýsir hún því hvernig þuklað hafi verið á henni og fingur settir inn í hana á meðan hópurinn var saman í heitum potti í sumar­bústað. Ekki liggur fyrir af frásögninni hver …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Sorglegt að menn geti orðið svona siðferðislega firtir og blindir, minnir á norsku þættina um Útrás þar sem menn stóðu saman og héldu villt partý.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er hinn almeni Sjalli ekkert að verða þreitur á þessum enda lausu skandölum sem fingralangir og kinferðislega brenglaðir fyrirmenni í Flokknum koma honum og sér í?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár